Sálmur
Eftir Davíð.
103 Ég vil lofa Jehóva,
allt sem í mér býr lofi heilagt nafn hans.
2 Ég vil lofa Jehóva
og aldrei gleyma því sem hann hefur gert.+
8 Jehóva er miskunnsamur og samúðarfullur,+
10 Hann kemur ekki fram við okkur í samræmi við syndir okkar+
né endurgeldur okkur eftir mistökum okkar+
11 því að eins hátt og himinninn er yfir jörðinni,
eins mikill er tryggur kærleikur hans til þeirra sem óttast hann.+
12 Eins langt og sólarupprásin er frá sólsetrinu,*
eins langt hefur hann fjarlægt afbrot okkar frá okkur.+
13 Eins og faðir sýnir börnum sínum miskunn
hefur Jehóva miskunnað þeim sem óttast hann+
14 því að hann veit vel hvernig við erum sköpuð,+
hann minnist þess að við erum mold.+
15 Ævidagar mannsins eru eins og grasið.+
Hann blómstrar eins og blóm á engi+
16 en vindurinn blæs og blómið hverfur
eins og það hafi aldrei verið til.*
17 En Jehóva sýnir tryggan kærleika um alla eilífð*
þeim sem óttast hann+
og réttlæti sitt barnabörnum þeirra,+
18 þeim sem halda sáttmála hans+
og fara vandlega eftir fyrirmælum hans.
22 Lofið Jehóva, öll verk hans,
alls staðar þar sem hann ríkir.
Allt sem í mér býr lofi Jehóva.