147 Lofið Jah!
Gott er að lofsyngja Guð okkar,
það er ánægjulegt og við hæfi að lofa hann.+
2 Jehóva byggir Jerúsalem,+
hann safnar saman hinum tvístruðu frá Ísrael.+
3 Hann læknar hina sorgmæddu
og bindur um sár þeirra.
4 Hann þekkir tölu stjarnanna,
hann nefnir þær allar með nafni.+
5 Drottinn okkar er mikill og máttugur,+
viska hans er takmarkalaus.+
6 Jehóva reisir hina auðmjúku á fætur+
en kastar hinum illu til jarðar.
7 Syngið Jehóva þakkarsöng,
lofsyngið Guð okkar við hörpuleik,
8 hann sem þekur himininn skýjum,
sér jörðinni fyrir regni+
og lætur gras spretta+ á fjöllunum.
9 Hann gefur dýrunum fæðu,+
hrafnsungunum sem krunka eftir henni.+
10 Hann hefur ekki mætur á krafti hestsins+
né hrífst hann af sterkum fótleggjum mannsins.+
11 Jehóva hefur ánægju af þeim sem óttast hann,+
þeim sem setja von sína á tryggan kærleika hans.+
12 Upphefðu Jehóva, Jerúsalem,
lofaðu Guð þinn, Síon.
13 Hann gerir slagbranda borgarhliðanna sterka,
hann blessar syni þína.
14 Hann veitir landi þínu frið,+
seður þig á fínasta hveiti.+
15 Hann sendir fyrirmæli sín til jarðar,
orð hans kemst fljótt til skila.
16 Hann lætur snjóinn falla eins og ull,+
hann stráir hríminu eins og ösku.+
17 Hann varpar niður haglinu eins og brauðmolum.+
Hver getur staðist kulda hans?+
18 Hann sendir út orð sitt og ísinn þiðnar,
hann lætur vindinn blása+ og vatnið streymir.
19 Hann boðar Jakobi orð sitt,
Ísrael ákvæði sín og dóma.+
20 Það hefur hann ekki gert fyrir neina aðra þjóð,+
þær vita ekkert um dóma hans.
Lofið Jah!+