Amos
7 Alvaldur Drottinn Jehóva birti mér þessa sýn: Hann sendi engisprettusveim þegar seinni sáningin var farin að spretta.* Þetta var það sem spratt eftir heysláttinn fyrir konung. 2 Þegar engispretturnar höfðu étið upp gróður landsins sagði ég: „Æ, alvaldur Drottinn Jehóva, fyrirgefðu fólki þínu!+ Hvernig getur Jakob lifað af?* Hann er svo veikburða!“+
3 Þá snerist Jehóva hugur.*+ „Þetta skal ekki gerast,“ sagði Jehóva.
4 Alvaldur Drottinn Jehóva birti mér þessa sýn: Alvaldur Drottinn Jehóva boðaði refsingu með eldi. Hann gleypti vatnsdjúpið mikla og hluta landsins. 5 Þá sagði ég: „Æ, alvaldur Drottinn Jehóva, ekki gera þetta.+ Hvernig getur Jakob lifað af?* Hann er svo veikburða!“+
6 Þá snerist Jehóva hugur.*+ „Þetta skal ekki heldur gerast,“ sagði alvaldur Drottinn Jehóva.
7 Hann birti mér þessa sýn: Jehóva stóð uppi á múrvegg sem hafði verið reistur með lóðlínu* og hann var með lóðlínu í hendinni. 8 Jehóva spurði mig: „Hvað sérðu, Amos?“ „Lóðlínu,“ svaraði ég. Þá sagði Jehóva: „Ég legg lóðlínu við þjóð mína, Ísrael. Ég ætla ekki að afsaka hana lengur.+ 9 Fórnarhæðir Ísaks+ verða lagðar í eyði og helgidómar Ísraels jafnaðir við jörðu.+ Ég held gegn ætt Jeróbóams með sverði.“+
10 Amasía, prestur í Betel,+ sendi Jeróbóam+ Ísraelskonungi þessi skilaboð: „Amos gerir samsæri gegn þér mitt í Ísrael.+ Landið þolir ekki boðskap hans+ 11 því að hann segir: ‚Jeróbóam mun falla fyrir sverði og Ísraelsmenn verða fluttir í útlegð úr landi sínu.‘“+
12 Síðan sagði Amasía við Amos: „Komdu þér burt, sjáandi, og farðu til Júdalands. Þar geturðu unnið fyrir brauði þínu* og þar geturðu spáð.+ 13 En þú mátt ekki lengur spá í Betel+ því að hér er helgidómur konungs+ og musteri* ríkisins.“
14 Amos svaraði Amasía: „Ég var hvorki spámaður né sonur spámanns heldur var ég hjarðmaður+ og sá um mórfíkjutré.* 15 En Jehóva tók mig frá hjarðgæslunni og Jehóva sagði við mig: ‚Farðu og spáðu meðal þjóðar minnar, Ísraels.‘+ 16 Hlustaðu því á orð Jehóva: ‚Þú segir: „Spáðu ekki gegn Ísrael+ og flyttu ekki boðskap+ gegn ætt Ísaks.“ 17 Þess vegna segir Jehóva: „Konan þín verður vændiskona í borginni og synir þínir og dætur falla fyrir sverði. Jörð þinni verður skipt niður með mælisnúru og þú munt sjálfur deyja í óhreinu landi. Ísraelsmenn verða fluttir í útlegð úr landi sínu.“‘“+