Jeremía
1 Þetta eru orð Jeremía* sonar Hilkía sem var einn af prestunum í Anatót+ í landi Benjamíns. 2 Orð Jehóva kom til hans á dögum Jósía+ Amónssonar+ Júdakonungs, á 13. stjórnarári hans. 3 Það kom einnig á dögum Jójakíms+ Jósíasonar Júdakonungs og allt til loka 11. stjórnarárs Sedekía+ Jósíasonar Júdakonungs, allt þar til Jerúsalembúar voru fluttir í útlegð í fimmta mánuðinum.+
4 Orð Jehóva kom til mín:
Ég gerði þig að spámanni þjóðanna.“
6 En ég sagði: „Æ, alvaldur Drottinn Jehóva!
Ég kann ekki að tala+ því að ég er svo ungur.“+
7 Þá sagði Jehóva við mig:
„Segðu ekki: ‚Ég er svo ungur,‘
því að þú átt að fara til allra sem ég sendi þig til
og þú átt að segja þeim allt sem ég fel þér.+
9 Síðan rétti Jehóva út höndina og snerti munn minn.+ Jehóva sagði við mig: „Ég legg orð mín þér í munn.+ 10 Í dag hef ég sett þig yfir þjóðirnar og konungsríkin til að uppræta og rífa niður, til að eyða og brjóta niður, til að byggja og gróðursetja.“+
11 Orð Jehóva kom aftur til mín: „Hvað sérðu, Jeremía?“ „Ég sé möndluviðargrein,“* svaraði ég.
12 Jehóva sagði við mig: „Þú hefur séð rétt því að ég er glaðvakandi til að hrinda orðum mínum í framkvæmd.“
13 Orð Jehóva kom til mín í annað sinn: „Hvað sérðu?“ „Ég sé sjóðandi pott* sem hallast úr norðri,“ svaraði ég. 14 Þá sagði Jehóva við mig:
„Úr norðri munu hörmungarnar brjótast fram
og hellast yfir alla íbúa landsins+
15 því að ‚ég stefni saman öllum ættkvíslum konungsríkjanna í norðri‘, segir Jehóva.+
‚Þær koma og hver konungur reisir hásæti sitt
fyrir utan borgarhlið Jerúsalem,+
á móti múrum hennar hringinn í kring
og á móti öllum borgum í Júda.+
16 Ég mun kveða upp dóma yfir íbúum þeirra vegna allrar illsku þeirra,
vegna þess að þeir hafa yfirgefið mig.+
17 Vertu viðbúinn,*
stattu upp og segðu þeim allt sem ég fel þér.