Jobsbók
38 Þá svaraði Jehóva Job úr storminum:+
3 Mannaðu þig upp,
ég ætla að spyrja þig og þú skalt svara mér.
4 Hvar varst þú þegar ég lagði grunn að jörðinni?+
Segðu mér það ef þú heldur að þú vitir það.
5 Hver ákvað umfang hennar, veistu það,
eða hver strekkti mælisnúru yfir hana?
6 Á hvað var sökklum hennar sökkt
eða hver lagði hornstein hennar+
8 Hver lokaði hafið af með hliðum+
þegar það braust fram úr móðurkviði,
9 þegar ég klæddi það skýjum
og sveipaði* það svartamyrkri,
10 þegar ég ákvað takmörk þess
og setti upp slagbranda þess og hlið+
11 og sagði: ‚Hingað máttu koma en ekki lengra,
hér stöðvast þínar hreyknu öldur‘?+
12 Hefurðu einhvern tíma kallað á morguninn
eða vísað döguninni á sinn stað+
13 svo að hún grípi í jaðar jarðar
og hristi hina illu af henni?+
14 Jörðin breytist eins og leir undir innsigli
og landslagið birtist eins og skraut á flík.
15 En ljós hinna illu er tekið frá þeim
og upplyftur handleggur þeirra brotinn.
16 Hefurðu farið niður að uppsprettum hafsins
eða kannað sjávardjúpin?+
18 Hefurðu áttað þig á víðáttum jarðar?+
Segðu mér frá ef þú þekkir allt þetta.
20 Geturðu fundið stígana að húsi þeirra
og fylgt þeim heim?
21 Veistu þetta? Varstu fæddur þá?
Eru ævidagar þínir svona margir?
22 Hefurðu komið í forðabúr snævarins+
eða séð geymslur haglsins+
23 sem ég hef geymt til neyðartíma,
til stríðs- og orrustudags?+
25 Hver bjó til farveg fyrir steypiregnið
og ruddi braut fyrir þrumuskýið+
26 svo að rigni yfir mannautt land,
yfir óbyggðina þar sem enginn býr+
27 til að metta uppþornuð öræfi
og láta grasið spretta?+
29 Hver er móðir íssins
og hver fæddi hrím himinsins?+
30 Hver gerir yfirborð vatnsins hart eins og stein
og hylur djúpið íshellu?+
Geturðu látið áhrifa þeirra* gæta á jörðinni?
34 Geturðu kallað til skýjanna
svo að hellirigni á þig?+
35 Geturðu sent frá þér eldingar?
Koma þær til þín og segja: ‚Hér erum við!‘
37 Hver er nógu vitur til að geta talið skýin
og hver getur hellt úr vatnskerum himins+
38 þannig að jörðin fljóti í leðju
og moldin kekkjist saman?
39 Geturðu veitt bráð handa ljóni
eða satt hungur ljónshvolpa+
40 þegar þeir kúra í bæli sínu
eða sitja fyrir bráð?
41 Hver færir hrafninum fæðu+
þegar ungarnir krunka eftir hjálp Guðs
og flögra um því að þeir hafa ekkert æti?