Matteus segir frá
28 Eftir hvíldardaginn, þegar birti af fyrsta degi vikunnar, komu María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.+
2 Mikill jarðskjálfti hafði orðið því að engill Jehóva* hafði stigið niður af himni og velt steininum frá og sat nú á honum.+ 3 Hann ljómaði eins og elding og fötin voru snjóhvít.+ 4 Varðmennirnir skulfu af hræðslu þegar þeir sáu hann og voru lamaðir af ótta.
5 En engillinn sagði við konurnar: „Verið óhræddar. Ég veit að þið eruð að leita að Jesú sem var staurfestur.+ 6 Hann er ekki hér því að hann hefur verið reistur upp eins og hann sagði.+ Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá. 7 Farið síðan sem skjótast og segið lærisveinunum að hann sé risinn upp frá dauðum. Hann fer á undan ykkur til Galíleu+ og þar fáið þið að sjá hann. Munið hvað ég hef sagt ykkur.“+
8 Þær flýttu sér þá burt frá gröfinni,* óttaslegnar en mjög glaðar, og hlupu af stað til að færa lærisveinunum fréttirnar.+ 9 Jesús kom á móti þeim og sagði: „Sælar!“ Þær fóru til hans, féllu fram fyrir honum, gripu um fætur hans og veittu honum lotningu. 10 Jesús sagði þá við þær: „Verið óhræddar. Farið og segið bræðrum mínum frá svo að þeir fari til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig.“
11 Meðan þær voru á leiðinni fóru nokkrir af varðmönnunum+ inn í borgina og sögðu yfirprestunum frá öllu sem hafði gerst. 12 Yfirprestarnir söfnuðust þá saman ásamt öldungunum og báru saman ráð sín. Þeir gáfu síðan hermönnunum talsvert fé* 13 og sögðu: „Segið að lærisveinar hans hafi komið að næturlagi og stolið honum meðan þið sváfuð.+ 14 Og ef landstjórinn fréttir þetta skulum við útskýra málið fyrir honum.* Hafið engar áhyggjur.“ 15 Þeir tóku þá við fénu og gerðu eins og þeim var sagt. Þessi saga hefur verið borin út meðal Gyðinga allt fram á þennan dag.
16 En lærisveinarnir 11 fóru til Galíleu,+ til fjallsins þar sem Jesús hafði sagt að þeir skyldu hittast.+ 17 Þegar þeir sáu hann veittu þeir honum lotningu* en sumir efuðust. 18 Jesús gekk til þeirra og sagði: „Mér hefur verið gefið allt vald á himni og jörð.+ 19 Farið því og gerið fólk af öllum þjóðum+ að lærisveinum, skírið það+ í nafni föðurins, sonarins og heilags anda 20 og kennið því að halda öll fyrirmæli mín.+ Og munið að ég er með ykkur alla daga allt þar til þessi heimsskipan* endar.“+