Þriðja Mósebók
19 Jehóva sagði einnig við Móse: 2 „Segðu við allan söfnuð Ísraelsmanna: ‚Þið skuluð vera heilög því að ég, Jehóva Guð ykkar, er heilagur.+
3 Hver og einn á að virða* móður sína og föður+ og þið skuluð halda hvíldardaga mína.+ Ég er Jehóva Guð ykkar. 4 Snúið ykkur ekki til einskis nýtra guða+ og gerið ykkur ekki steypta guði.+ Ég er Jehóva Guð ykkar.
5 Ef þið færið Jehóva samneytisfórn+ skuluð þið fórna henni þannig að þið hljótið velþóknun hans.+ 6 Það á að borða hana sama dag og hún er færð og daginn eftir en það sem eftir er á þriðja degi á að brenna í eldi.+ 7 Ef borðað er af henni á þriðja degi er það viðurstyggð og fórnin er ekki velþóknanleg Guði. 8 Sá sem borðar af henni þarf að svara til saka fyrir synd sína því að hann hefur vanhelgað það sem er helgað Jehóva og hann skal upprættur úr þjóð sinni.*
9 Þegar þú hirðir uppskeru landsins skaltu ekki hirða það sem er í útjaðri akursins né tína það upp sem liggur eftir á akrinum.+ 10 Þú skalt ekki heldur safna því sem verður eftir í víngarði þínum né tína upp það sem fellur til jarðar. Þú átt að skilja það eftir handa fátækum*+ og útlendingum. Ég er Jehóva Guð ykkar.
11 Þið skuluð ekki stela,+ þið skuluð ekki blekkja+ og þið skuluð ekki vera óheiðarleg hvert við annað. 12 Þið skuluð ekki sverja rangan eið í mínu nafni+ og vanhelga það. Ég er Jehóva. 13 Þú mátt ekki hafa neitt af náunga þínum+ né ræna hann.+ Þú mátt ekki halda eftir launum lausráðins manns næturlangt.+
14 Þú skalt ekki bölva* heyrnarlausum manni eða leggja hindrun í veg fyrir blindan mann.+ Þú skalt óttast Guð þinn.+ Ég er Jehóva.
15 Þú mátt ekki vera ranglátur þegar þú dæmir. Þú mátt hvorki draga taum hins fátæka né vera hliðhollur hinum ríka.+ Þú skalt dæma náunga þinn af réttlæti.
16 Þú mátt ekki bera út róg meðal landa þinna.+ Þú mátt ekki stofna lífi* náunga þíns í hættu.*+ Ég er Jehóva.
17 Þú mátt ekki bera hatur í hjarta til bróður þíns.+ Vertu óhræddur að ávíta náunga þinn+ svo að þú verðir ekki meðsekur honum.
18 Þú skalt ekki hefna þín+ né bera kala til náunga þíns heldur skaltu elska náunga þinn eins og sjálfan þig.+ Ég er Jehóva.
19 Þið skuluð halda ákvæði mín: Þið megið ekki láta tvær tegundir fénaðar para sig. Þið megið ekki sá tvenns konar korni í akra ykkar+ og þið megið ekki ganga í fötum sem eru ofin úr tvenns konar bandi.+
20 Ef maður leggst með þjónustustúlku og hefur kynmök við hana og hún er lofuð öðrum manni en hefur ekki verið keypt laus eða gefið frelsi liggur refsing við. Þau skulu þó ekki tekin af lífi því að henni hafði ekki verið veitt frelsi. 21 Maðurinn á að færa Jehóva sektarfórn við inngang samfundatjaldsins, hrút í sektarfórn.+ 22 Presturinn á að friðþægja fyrir hann með sektarfórnarhrútnum frammi fyrir Jehóva vegna syndarinnar sem hann drýgði og honum verður fyrirgefin syndin.
23 Þegar þið komið inn í landið og gróðursetjið aldintré skuluð þið líta á ávöxtinn sem óhreinan og ekki snerta hann.* Í þrjú ár skuluð þið forðast hann.* Það má ekki borða hann. 24 En fjórða árið er allur ávöxturinn heilagur og þið skuluð gefa hann Jehóva með fögnuði.+ 25 Fimmta árið megið þið borða ávöxtinn. Þá fáið þið meiri uppskeru. Ég er Jehóva Guð ykkar.
26 Þið megið ekki borða neitt sem blóð er í.+
Þið megið ekki leita að fyrirboðum eða stunda galdra.+
27 Þið megið ekki raka* af ykkur hárið við gagnaugun* eða afmynda skegglínuna.+
28 Þið megið ekki skera ykkur vegna látinnar manneskju*+ og þið megið ekki húðflúra ykkur. Ég er Jehóva.
29 Niðurlægðu ekki dóttur þína með því að gera hana að vændiskonu+ svo að landið óhreinkist ekki af vændi og fyllist lauslæti.+
30 Þið skuluð halda hvíldardaga mína+ og bera lotningu fyrir* helgidómi mínum. Ég er Jehóva.
31 Leitið hvorki til andamiðla+ né til spásagnarmanna+ svo að þið verðið ekki óhrein af þeim. Ég er Jehóva Guð ykkar.
32 Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhærða+ og sýna öldruðum virðingu.+ Þú skalt óttast Guð þinn.+ Ég er Jehóva.
33 Þið megið ekki fara illa með útlending sem býr með ykkur í landi ykkar.+ 34 Útlendingurinn sem býr á meðal ykkar á að vera ykkur eins og innfæddur maður.+ Þú skalt elska hann eins og sjálfan þig því að þið voruð einu sinni útlendingar í Egyptalandi.+ Ég er Jehóva Guð ykkar.
35 Þið megið ekki vera óheiðarleg þegar þið mælið lengd, þyngd eða rúmmál.+ 36 Þið skuluð nota nákvæma vog og nákvæm lóð og nota nákvæm mál þegar þið mælið þurrvöru* og vökva.*+ Ég er Jehóva Guð ykkar sem leiddi ykkur út úr Egyptalandi. 37 Þið skuluð halda öll ákvæði mín og lög og fara eftir þeim.+ Ég er Jehóva.‘“