Opinberun Jóhannesar
13 Hann* stóð kyrr á sandinum við hafið.
Nú sá ég villidýr+ koma upp úr hafinu.+ Það hafði tíu horn og sjö höfuð og á hornunum voru tíu kórónur* en á höfðunum nöfn sem löstuðu Guð. 2 Villidýrið sem ég sá líktist hlébarða en fæturnir voru eins og bjarnarfætur og ginið eins og ljónsgin. Dýrið fékk mátt sinn, hásæti og mikið vald+ frá drekanum.+
3 Ég sá að eitt af höfðum þess virtist hafa fengið banasár en sárið hafði gróið,+ og öll jörðin fylgdi villidýrinu full aðdáunar. 4 Fólk tilbað drekann af því að hann gaf villidýrinu vald og það tilbað villidýrið og sagði: „Hver jafnast á við villidýrið og hver getur barist við það?“ 5 Því var gefinn munnur sem gortaði og guðlastaði og það fékk vald til að gera eins og því sýndist í 42 mánuði.+ 6 Það opnaði munninn til að lastmæla+ Guði, nafni hans og bústað, það er að segja þeim sem búa á himni.+ 7 Því var leyft að heyja stríð við hina heilögu og sigra þá,+ og því var gefið vald yfir hverjum ættflokki, kynþætti, tungu* og þjóð. 8 Allir sem búa á jörðinni munu tilbiðja það. Frá grundvöllun heims hefur enginn þeirra fengið nafn sitt skráð í bókrollu lífsins+ sem tilheyrir lambinu slátraða.+
9 Ef einhver hefur eyru skal hann heyra.+ 10 Ef einhverjum er ætluð fangavist verður hann tekinn til fanga. Ef einhver drepur með sverði* verður hann drepinn með sverði.+ Hér reynir á þolgæði+ og trú+ hinna heilögu.+
11 Síðan sá ég annað villidýr koma upp úr jörðinni. Það var með tvö horn eins og lambshorn en talaði eins og dreki.+ 12 Það fer með allt vald fyrra villidýrsins+ í augsýn þess og lætur jörðina og íbúa hennar tilbiðja fyrra villidýrið sem læknaðist af banasárinu.+ 13 Það gerir mikil tákn og lætur jafnvel eld koma af himni til jarðar fyrir augum mannanna.
14 Það afvegaleiðir þá sem búa á jörðinni með táknunum sem því var leyft að gera í augsýn villidýrsins. Og það segir þeim sem búa á jörðinni að gera líkneski+ af* villidýrinu sem var með sár undan sverði en lifnaði við.+ 15 Það fékk leyfi til að blása lífi* í líkneskið af villidýrinu svo að líkneskið gæti bæði talað og látið drepa alla sem neituðu að tilbiðja það.
16 Það neyðir alla – háa og lága, ríka og fátæka, frjálsa og þræla – til að fá merki á hægri hönd sér eða enni+ 17 þannig að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn+ villidýrsins eða tölu nafnsins.+ 18 Hér þarf að sýna visku. Sá sem hefur skilning reikni út tölu villidýrsins því að hún er tala manns,* og talan er 666.+