Lofsöngur eftir Davíð.
א [alef]
145 Ég upphef þig, Guð minn og konungur,+
ég lofa nafn þitt um alla eilífð.+
ב [bet]
2 Allan daginn lofa ég þig,+
ég lofa nafn þitt um alla eilífð.+
ג [gimel]
3 Jehóva er mikill og verðskuldar lof,+
dýrð hans er ofvaxin skilningi okkar.+
ד [dalet]
4 Kynslóð eftir kynslóð mun lofa verk þín
og segja frá máttarverkum þínum.+
ה [he]
5 Þær tala um dýrðarljóma hátignar þinnar+
og ég hugleiði undraverk þín.
ו [vá]
6 Þær tala um mikilfengleg afrek þín
og ég boða hve stórfenglegur þú ert.
ז [zajin]
7 Þær eru himinlifandi þegar þær hugsa um ríkulega góðvild þína+
og hrópa af gleði yfir réttlæti þínu.+
ח [het]
8 Jehóva er samúðarfullur og miskunnsamur,+
seinn til reiði og sýnir tryggan kærleika í ríkum mæli.+
ט [tet]
9 Jehóva er öllum góður+
og miskunn hans birtist í öllum verkum hans.
י [jód]
10 Öll verk þín upphefja þig, Jehóva,+
og þínir trúföstu lofa þig.+
כ [kaf]
11 Þeir boða dýrð konungdóms þíns+
og segja frá valdi þínu+
ל [lamed]
12 svo að menn kynnist máttarverkum þínum+
og dýrðarljóma konungdóms þíns.+
מ [mem]
13 Konungdómur þinn er eilífur
og veldi þitt varir um allar kynslóðir.+
ס [samek]
14 Jehóva styður alla sem eru að falla+
og reisir upp alla niðurbeygða.+
ע [ajin]
15 Augu allra horfa vonglöð til þín,
þú gefur þeim fæðu á réttum tíma.+
פ [pe]
16 Þú lýkur upp hendi þinni
og uppfyllir langanir alls sem lifir.+
צ [tsade]
17 Jehóva er réttlátur á öllum vegum sínum+
og trúfastur í öllu sem hann gerir.+
ק [qóf]
18 Jehóva er nálægur öllum sem ákalla hann,+
öllum sem ákalla hann í einlægni.+
ר [res]
19 Hann uppfyllir langanir þeirra sem óttast hann,+
hann heyrir þá hrópa á hjálp og bjargar þeim.+
ש [shin]
20 Jehóva verndar alla sem elska hann+
en eyðir öllum illum.+
ת [tá]
21 Ég vil lofsyngja Jehóva,+
allt sem lifir lofi heilagt nafn hans um alla eilífð.+