Míka
7 Æ! Ég er eins og maður
sem finnur engan berjaklasa til að borða
eða snemmvaxnar fíkjur sem hann sárlangar í
eftir að sumarávöxtum hefur verið safnað
og eftirtíningi vínuppskerunnar er lokið.
2 Hinn trúfasti er horfinn af jörðinni,
meðal manna er enginn réttlátur.+
Allir bíða færis til að úthella blóði,+
þeir reyna að veiða hver annan í net.
3 Þeir eru færir í að gera það sem er illt.+
Höfðinginn gerir kröfur,
dómarinn krefst greiðslu,+
hinn voldugi lætur óskir sínar í ljós+
og saman leggja þeir á ráðin.*
4 Sá besti meðal þeirra er eins og þyrnar,
sá réttlátasti verri en þyrnigerði.
Dagurinn sem varðmenn þínir vöruðu við kemur, dagur uppgjörsins.+
Nú fyllast þeir skelfingu.+
5 Trúðu ekki félaga þínum
og treystu ekki nánum vini.+
Gættu þín hvað þú segir við hana sem liggur í faðmi þínum.
6 Sonur fyrirlítur föður sinn,
dóttir snýst gegn móður sinni+
og tengdadóttir gegn tengdamóður sinni.+
Heimilismenn manns eru óvinir hans.+
7 En ég ætla að skima eftir Jehóva.+
Ég ætla að bíða þolinmóður eftir Guði, frelsara mínum.+
Guð minn mun heyra til mín.+
8 Hlakkaðu ekki yfir mér, óvinur* minn.
Þótt ég hafi fallið stend ég upp aftur,
þótt ég búi í myrkri er Jehóva ljós mitt.
9 Ég hef syndgað gegn Jehóva+
og þarf því að þola reiði hans
þar til hann flytur mál mitt og lætur mig ná rétti mínum.
Hann leiðir mig út í ljósið,
ég fæ að sjá réttlæti hans.
10 Óvinur minn sér það líka
og skömm leggst yfir hana sem spurði mig:
„Hvar er Jehóva Guð þinn?“+
Ég mun sjá hana
þegar hún verður troðin niður eins og aur á götu.
11 Sá dagur kemur að múrar þínir verða reistir,
þann dag verða landamærin færð út.*
12 Þann dag koma menn til þín
alla leið frá Assýríu og borgum Egyptalands,
frá Egyptalandi allt til Fljótsins,*
frá hafi til hafs og fjalli til fjalls.+
13 Og landið leggst í eyði vegna íbúa sinna,
vegna þess sem þeir hafa gert.*
14 Gættu fólks þíns með hirðisstaf þínum, hjarðarinnar sem þú átt*+
og bjó út af fyrir sig í skógi – í miðjum aldingarði.
Haltu henni á beit í Basan og Gíleað+ eins og forðum daga.
15 „Ég læt ykkur sjá máttarverk
eins og þegar þið fóruð út úr Egyptalandi.+
16 Þjóðir sjá þau og skammast sín þrátt fyrir allan mátt sinn.+
Þær grípa fyrir munninn,
missa heyrnina.
17 Þær sleikja rykið eins og höggormar,+
eins og skriðdýr jarðar koma þær skjálfandi út úr virkjum sínum.
Þær koma óttaslegnar til Jehóva Guðs okkar
og þær munu hræðast þig.“+
18 Hvaða guð er eins og þú?
Þú fyrirgefur syndir og horfir fram hjá misgerðum+ þeirra sem eftir eru af fólki þínu.*+
Þú ert ekki reiður að eilífu
því að þú hefur yndi af að sýna tryggð og kærleika.+
19 Þú sýnir okkur aftur miskunn+ og yfirbugar* syndir okkar.
Þú kastar öllum syndum okkar í djúp hafsins.+