Nehemíabók
8 Allt fólkið safnaðist nú saman á torginu við Vatnshliðið+ og bað Esra+ afritara* að sækja bókina með Móselögunum+ sem Jehóva hafði sagt Ísrael að fylgja.+ 2 Esra prestur sótti þá lögbókina og tók sér stöðu frammi fyrir söfnuðinum,+ körlum, konum og öllum sem höfðu aldur til að hlusta og skilja. Þetta var á fyrsta degi sjöunda mánaðarins.+ 3 Hann las upp úr henni+ við torgið hjá Vatnshliðinu fyrir karlana, konurnar og alla sem höfðu aldur til að skilja. Hann las frá birtingu til hádegis og fólkið hlustaði með athygli+ á lestur lögbókarinnar. 4 Esra afritari* stóð á trépalli sem hafði verið smíðaður af þessu tilefni. Honum á hægri hönd stóðu Mattitja, Sema, Anaja, Úría, Hilkía og Maaseja og honum á vinstri hönd stóðu Pedaja, Mísael, Malkía,+ Hasúm, Hasbaddana, Sakaría og Mesúllam.
5 Esra opnaði bókina að öllum ásjáandi því að hann stóð hærra en þeir. Allt fólkið stóð upp þegar hann opnaði hana. 6 Esra lofaði þá Jehóva, hinn sanna Guð, hinn mikla, og fólkið lyfti upp höndunum og sagði: „Amen!* Amen!“+ Það kraup síðan og féll á grúfu frammi fyrir Jehóva. 7 Jesúa, Baní, Serebja,+ Jamín, Akkúb, Sabbetaí, Hódía, Maaseja, Kelíta, Asarja, Jósabad,+ Hanan og Pelaja, sem voru Levítar, útskýrðu lögin fyrir fólkinu+ meðan það stóð. 8 Og þeir héldu áfram að lesa upp úr bókinni, lögbók hins sanna Guðs, og útskýrðu vel hvað lögin sögðu og hvað þau þýddu þannig að fólkið skildi það sem var lesið.+
9 Nehemía, sem var landstjóri,* Esra,+ prestur og afritari,* og Levítarnir sem voru að kenna sögðu nú við fólkið: „Þessi dagur er heilagur fyrir Jehóva Guði ykkar.+ Syrgið hvorki né grátið.“ En allt fólkið grét þegar það heyrði lögin lesin. 10 Nehemía sagði við fólkið: „Farið og borðið ljúffengan mat,* drekkið sæta drykki og sendið matarskammta+ til þeirra sem hafa ekkert að borða því að þessi dagur er heilagur fyrir Drottni okkar. Verið ekki döpur því að gleði Jehóva er styrkur* ykkar.“ 11 Og Levítarnir róuðu fólkið og sögðu: „Grátið ekki því að þessi dagur er heilagur. Verið ekki döpur.“ 12 Allt fólkið fór þá til að borða og drekka og senda matarskammta. Það hélt mikla gleðihátíð+ því að það skildi það sem það hafði lært.+
13 Ættarhöfðingjar fólksins, prestarnir og Levítarnir söfnuðust saman hjá Esra afritara* daginn eftir til að fá nánari skilning á efni laganna. 14 Þá uppgötvuðu þeir að í lögunum sem Jehóva hafði sett fyrir milligöngu Móse stóð að Ísraelsmenn ættu að búa í laufskálum* á hátíðinni í sjöunda mánuðinum.+ 15 Þar stóð að þeir ættu að boða+ og tilkynna í öllum borgum sínum og í Jerúsalem: „Farið upp í fjalllendið og sækið laufgaðar greinar af ólívutrjám, furutrjám, myrtutrjám, pálmum og öðrum trjám til að gera laufskála eins og kveðið er á um.“
16 Fólkið fór þá og sótti greinar til að gera sér laufskála, hver á húsþaki sínu, í garði sínum, í forgörðum húss hins sanna Guðs,+ á torginu við Vatnshliðið+ eða á torginu við Efraímshliðið.+ 17 Allir sem höfðu komið heim úr útlegðinni gerðu sér laufskála og bjuggu í þeim en það höfðu Ísraelsmenn ekki gert frá því á dögum Jósúa+ Núnssonar allt til þessa dags. Gleðin var mjög mikil.+ 18 Lesið var daglega upp úr lögbók hins sanna Guðs,+ frá fyrsta degi til hins síðasta. Hátíðin var haldin í sjö daga og á áttunda degi var haldin hátíðarsamkoma eins og kveðið var á um.+