Matteus segir frá
20 Himnaríki má líkja við landeiganda sem fór út snemma morguns til að ráða verkamenn í víngarð sinn.+ 2 Eftir að hafa samið við verkamennina um denar* í daglaun sendi hann þá í víngarðinn. 3 Um þriðju stund* fór hann aftur út og sá menn standa atvinnulausa á markaðstorginu. 4 Hann sagði við þá: ‚Farið þið líka í víngarðinn og ég skal greiða ykkur sanngjörn laun,‘ 5 og þeir fóru. Hann fór einnig út um sjöttu stund* og níundu stund* og réð fleiri. 6 Að lokum, um elleftu stund,* fór hann út og fann aftur menn sem stóðu þar og hann sagði við þá: ‚Hvers vegna hafið þið staðið hér atvinnulausir allan daginn?‘ 7 ‚Vegna þess að enginn hefur ráðið okkur,‘ svöruðu þeir. Hann sagði þá: ‚Farið þið líka í víngarðinn.‘
8 Um kvöldið sagði víngarðseigandinn við verkstjóra sinn: ‚Kallaðu á verkamennina og greiddu þeim kaupið.+ Byrjaðu á þeim síðustu og endaðu á þeim fyrstu.‘ 9 Þeir sem voru ráðnir á elleftu stund komu nú og fengu hver sinn denar.* 10 Þegar þeir fyrstu komu bjuggust þeir við að fá meira, en þeir fengu líka sinn denarinn* hver. 11 Þá fóru þeir að kvarta við landeigandann 12 og sögðu: ‚Þeir sem komu síðast unnu eina stund. Samt fá þeir sama kaup og við sem höfum stritað allan daginn í steikjandi hitanum.‘ 13 En hann svaraði einum þeirra: ‚Vinur, ég er ekki ósanngjarn við þig. Sömdum við ekki um einn denar?*+ 14 Taktu kaupið þitt og farðu leiðar þinnar. Ég vil greiða þeim síðasta það sama og þér. 15 Ræð ég ekki sjálfur hvað ég geri við eigið fé? Eða ertu öfundsjúkur* af því að ég er örlátur?‘*+ 16 Þannig verða hinir síðustu fyrstir og hinir fyrstu síðastir.“+
17 Á leiðinni upp til Jerúsalem tók Jesús lærisveinana 12 afsíðis og sagði einslega við þá:+ 18 „Nú erum við á leið upp til Jerúsalem og Mannssonurinn verður látinn í hendur yfirpresta og fræðimanna. Þeir munu dæma hann til dauða+ 19 og láta hann í hendur manna af þjóðunum sem munu hæðast að honum, húðstrýkja og staurfesta,+ en á þriðja degi verður hann reistur upp.“+
20 Nú kom móðir Sebedeussona+ til hans ásamt sonum sínum, kraup fyrir honum* og bað hann um greiða.+ 21 „Hvað viltu?“ spurði hann. Hún svaraði: „Lofaðu að synir mínir tveir fái að sitja við hlið þér í ríki þínu, annar til hægri handar og hinn til vinstri.“+ 22 Jesús sagði: „Þið vitið ekki um hvað þið biðjið. Getið þið drukkið bikarinn sem ég á að drekka?“+ „Við getum það,“ svöruðu þeir. 23 Hann sagði við þá: „Þið skuluð vissulega drekka bikar minn+ en það er ekki mitt að ákveða hver situr mér til hægri handar og vinstri. Þessi sæti eru tekin frá handa þeim sem faðir minn hefur ákveðið að sitji þar.“+
24 Þegar hinir tíu heyrðu af þessu urðu þeir gramir út í bræðurna tvo.+ 25 En Jesús kallaði þá til sín og sagði: „Þið vitið að þeir sem ráða yfir þjóðunum drottna yfir þeim og háttsettir menn beita valdi sínu.+ 26 Þannig má það ekki vera hjá ykkur.+ Sá sem vill verða mikill á meðal ykkar á að vera þjónn ykkar+ 27 og sá sem vill vera fremstur á meðal ykkar á að vera þræll ykkar,+ 28 rétt eins og Mannssonurinn sem kom ekki til að láta þjóna sér heldur til að þjóna+ og gefa líf sitt sem lausnargjald fyrir marga.“+
29 Mikill mannfjöldi fylgdi honum þegar þeir fóru frá Jeríkó. 30 Tveir blindir menn sátu við veginn. Þegar þeir heyrðu að Jesús ætti leið hjá hrópuðu þeir: „Drottinn sonur Davíðs, miskunnaðu okkur!“+ 31 Fólkið hastaði á þá og sagði þeim að þegja en þeir hrópuðu bara enn hærra: „Drottinn sonur Davíðs, miskunnaðu okkur!“ 32 Jesús nam þá staðar, kallaði á þá og sagði: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“ 33 Þeir sögðu við hann: „Drottinn, opnaðu augu okkar.“ 34 Jesús kenndi í brjósti um þá, snerti augu þeirra+ og þeir endurheimtu sjónina samstundis og fylgdu honum.