Jeremía
23 „Illa fer fyrir hirðunum sem tortíma og tvístra sauðunum á beitilandi mínu!“ segir Jehóva.+
2 Þess vegna segir Jehóva Guð Ísraels um hirðana sem gæta þjóðar hans: „Þið hafið tvístrað sauðum mínum. Þið hafið sundrað þeim en ekki annast þá.“+
„Þess vegna ætla ég að refsa ykkur fyrir illskuverk ykkar,“ segir Jehóva.
3 „Síðan safna ég saman þeim sem eftir eru af sauðum mínum frá öllum þeim löndum sem ég hef tvístrað þeim til.+ Ég leiði þá aftur á beitiland þeirra+ og þeir verða frjósamir og þeim fjölgar.+ 4 Ég set hirða yfir þá og þeir munu gæta þeirra vel.+ Þeir verða ekki framar hræddir né óttaslegnir og engan þeirra mun vanta,“ segir Jehóva.
5 „Þeir dagar koma,“ segir Jehóva, „þegar ég læt réttlátan sprota* vaxa af ætt Davíðs.+ Konungur mun ríkja+ með skynsemi og standa vörð um réttlæti og réttvísi í landinu.+ 6 Á hans dögum verður Júda bjargað+ og Ísrael mun búa við öryggi.+ Þetta er nafnið sem honum verður gefið: ‚Jehóva er réttlæti okkar.‘“+
7 „Þeir dagar munu því koma,“ segir Jehóva, „þegar menn segja ekki lengur: ‚Svo sannarlega sem Jehóva lifir, hann sem leiddi Ísraelsmenn út úr Egyptalandi!‘+ 8 heldur: ‚Svo sannarlega sem Jehóva lifir, hann sem leiddi afkomendur Ísraelsmanna út úr landinu í norðri og öllum þeim löndum sem hann hafði hrakið þá til og flutti þá heim!‘ Þeir munu búa í sínu eigin landi.“+
9 Um spámennina:
Hjartað í brjósti mér er brostið.
Öll bein mín skjálfa.
Ég er eins og drukkinn maður,
eins og maður sem er bugaður af víndrykkju
vegna Jehóva og vegna hans heilögu orða.
10 Landið er fullt af ótrúum mönnum,*+
landið syrgir vegna bölvunarinnar+
og beitilönd óbyggðanna eru skrælnuð.+
Þeir ganga illskunnar braut og misbeita valdi sínu.
11 „Bæði spámenn og prestar eru spilltir.*+
Jafnvel í húsi mínu hef ég horft upp á illsku þeirra,“+ segir Jehóva.
12 „Þess vegna verður gata þeirra hál og dimm,+
þeim verður hrint svo að þeir falla
því að ég leiði ógæfu yfir þá
á ári uppgjörsins,“ segir Jehóva.
13 „Ég sá spámenn Samaríu+ hegða sér á andstyggilegan hátt.
Þeir spáðu í nafni Baals
og afvegaleiddu þjóð mína, Ísrael.
14 Og ég hef séð spámenn Jerúsalem gera hryllilega hluti.
Þeir fremja hjúskaparbrot+ og fara með eintómar lygar.+
Þeir styðja þá* sem fremja illskuverk
og þeir snúa sér ekki frá illsku sinni.
15 Þess vegna segir Jehóva hersveitanna um spámennina:
„Ég gef þeim malurt að borða
og eitrað vatn að drekka+
því að frá spámönnum Jerúsalem hefur fráhvarf breiðst út um allt landið.“
16 Jehóva hersveitanna segir:
„Hlustið ekki á það sem spámennirnir segja ykkur.+
Þeir villa um fyrir ykkur.*
17 Þeir segja æ ofan í æ við þá sem fyrirlíta mig:
‚Jehóva segir: „Þið munuð njóta friðar.“‘+
Og við alla sem fylgja sínu þrjóska hjarta segja þeir:
‚Engin ógæfa kemur yfir ykkur.‘+
18 Hver hefur verið í innsta hring Jehóva
og séð og heyrt orð hans?
Hver hefur lagt við hlustir til að heyra orð hans?
19 Stormur Jehóva, reiði hans, brýst fram,
hann þyrlast yfir höfuð hinna illu eins og hvirfilbylur.+
20 Reiði Jehóva linnir ekki
fyrr en hann hefur framfylgt áformum hjarta síns og komið þeim til leiðar.
Þið munuð skilja það til fulls á síðustu dögum.
21 Ég sendi ekki spámennina en samt hlupu þeir af stað.
Ég talaði ekki til þeirra en samt spáðu þeir.+
22 En hefðu þeir verið í mínum innsta hring
hefðu þeir flutt þjóð minni orð mín
og beint henni af illskubrautinni, snúið henni frá vondum verkum sínum.“+
23 „Er ég aðeins Guð þegar ég er nálægur?“ segir Jehóva. „Er ég ekki líka Guð þegar ég er langt í burtu?“
24 „Getur nokkur maður falið sig þar sem ég sé hann ekki?“+ spyr Jehóva.
„Fylli ég ekki bæði himin og jörð?“+ spyr Jehóva.
25 „Ég hef heyrt hvað spámennirnir sem boða lygar í mínu nafni segja: ‚Mig dreymdi draum! Mig dreymdi draum!‘+ 26 Hve lengi ætla spámennirnir að halda áfram að fara með lygar? Spár þeirra eru blekkingar þeirra eigin hjartna.+ 27 Þeir reyna að fá fólk mitt til að gleyma nafni mínu með draumunum sem þeir segja hver öðrum, alveg eins og feður þeirra gleymdu nafni mínu vegna Baals.+ 28 Sá spámaður sem dreymir draum skal segja drauminn en sá sem hefur orð mitt skal vera sannorður þegar hann flytur það.“
„Hvað er sameiginlegt með strái og korni?“ segir Jehóva.
29 „Er ekki orð mitt eins og eldur,“+ segir Jehóva, „og eins og sleggja sem mölvar klettinn?“+
30 „Þess vegna snýst ég gegn spámönnunum,“ segir Jehóva, „sem stela orðum mínum hver frá öðrum.“+
31 „Ég snýst gegn spámönnunum,“ segir Jehóva, „sem segja með tungu sinni: ‚Þetta segir hann!‘“+
32 „Ég snýst gegn spámönnunum sem segja uppspunna drauma,“ segir Jehóva, „og afvegaleiða fólk mitt með lygum sínum og gorti.“+
„Ég sendi þá ekki og gaf þeim engin fyrirmæli. Þess vegna gera þeir fólkinu ekkert gagn,“+ segir Jehóva.
33 „Þegar þetta fólk, einhver spámaður eða prestur spyr þig: ‚Hver er byrði* Jehóva?‘ skaltu svara: ‚„Þið eruð byrðin! Og ég fleygi ykkur af mér,“+ segir Jehóva.‘ 34 Ef spámaður eða prestur eða einhver af þessu fólki segir: ‚Þetta er byrði* Jehóva!‘ þá snýst ég gegn þeim manni og fjölskyldu hans. 35 Hver og einn ykkar spyr náunga sinn og bróður: ‚Hverju hefur Jehóva svarað? Og hvað hefur Jehóva sagt?‘ 36 En þið skuluð aldrei aftur minnast á byrði* Jehóva því að byrðin er ykkar eigin orð og þið hafið afbakað orð hins lifandi Guðs, Jehóva hersveitanna, Guðs okkar.
37 Segðu við spámanninn: ‚Hvaða svar hefur Jehóva gefið þér? Og hvað hefur Jehóva sagt? 38 En ef þið haldið áfram að segja: „Byrði* Jehóva!“ þá segir Jehóva: „Þið segið: ‚Þessi orð eru byrði Jehóva,‘ þótt ég hafi bannað ykkur að segja: ‚Byrði Jehóva!‘ 39 Þess vegna lyfti ég ykkur upp og fleygi ykkur burt frá mér og sömuleiðis borginni sem ég gaf ykkur og forfeðrum ykkar. 40 Ég leiði yfir ykkur eilífa smán og eilífa niðurlægingu sem mun aldrei gleymast.“‘“+