Lúkas segir frá
17 Síðan sagði hann við lærisveinana: „Það er óhjákvæmilegt að eitthvað komi upp sem verður fólki að falli. En illa fer fyrir þeim sem veldur því. 2 Það væri betra fyrir hann að myllusteinn væri hengdur um háls hans og honum kastað í hafið en að hann yrði einum þessara minnstu að falli.+ 3 Gætið að ykkur. Ef bróðir þinn syndgar skaltu ávíta hann+ og ef hann iðrast skaltu fyrirgefa honum.+ 4 Jafnvel þótt hann syndgi gegn þér sjö sinnum á dag og komi aftur til þín sjö sinnum og segi: ‚Ég sé eftir þessu,‘ skaltu fyrirgefa honum.“+
5 Postularnir sögðu nú við Drottin: „Gefðu okkur meiri trú.“+ 6 Drottinn svaraði: „Ef þið hefðuð trú á við sinnepsfræ gætuð þið sagt við þetta mórberjatré: ‚Rífðu þig upp með rótum og gróðursettu þig í sjónum!‘ og það myndi hlýða ykkur.+
7 Segjum að einhver ykkar eigi þjón sem plægir eða gætir fjár. Segir hann þá við þjóninn þegar hann kemur inn af akrinum: ‚Komdu nú hingað og fáðu þér að borða‘? 8 Segir hann ekki öllu heldur: ‚Eldaðu handa mér kvöldmat, settu á þig svuntu og þjónaðu mér meðan ég borða og drekk. Síðan getur þú borðað og drukkið‘? 9 Varla verður hann þjóninum þakklátur fyrir að gera það sem var í hans verkahring. 10 Það sama á við um ykkur. Þegar þið hafið gert allt sem ykkur var falið skuluð þið segja: ‚Við erum ómerkilegir þjónar. Við höfum bara gert það sem við áttum að gera.‘“+
11 Á ferð Jesú til Jerúsalem lá leið hans á mörkum Samaríu og Galíleu. 12 Þegar hann kom að þorpi nokkru mættu honum tíu holdsveikir menn en stóðu þó í nokkurri fjarlægð.+ 13 Þeir hrópuðu: „Jesús, kennari, miskunnaðu okkur!“ 14 Þegar hann sá þá sagði hann við þá: „Farið og sýnið ykkur prestunum.“+ Á leiðinni þangað urðu þeir hreinir.+ 15 Einn þeirra sneri við þegar hann sá að hann hafði læknast og lofaði Guð háum rómi. 16 Hann féll á grúfu við fætur Jesú og þakkaði honum. En maðurinn var Samverji.+ 17 Jesús sagði þá: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru þá hinir níu? 18 Sneri enginn við til að lofa Guð nema þessi erlendi maður?“ 19 Síðan sagði hann við manninn: „Stattu á fætur og farðu leiðar þinnar. Trú þín hefur læknað þig.“+
20 Farísear spurðu hann nú hvenær ríki Guðs kæmi.+ Hann svaraði þeim: „Ríki Guðs kemur ekki þannig að mikið beri á. 21 Fólk mun ekki heldur segja: ‚Sjáið, það er hér!‘ eða: ‚Það er þar!‘ því að ríki Guðs er meðal ykkar.“+
22 Síðan sagði hann við lærisveinana: „Sá tími kemur að þið þráið að sjá einn af dögum Mannssonarins en fáið það ekki. 23 Menn munu segja við ykkur: ‚Sjáið, hann er þar!‘ eða: ‚Sjáið, hann er hér!‘ Farið ekki og hlaupið eftir þeim+ 24 því að Mannssonurinn+ verður á degi sínum eins og elding sem leiftrar frá einum enda himins til annars.+ 25 En fyrst þarf hann að þola miklar þjáningar og þessi kynslóð mun hafna honum.+ 26 Það verður eins á dögum Mannssonarins og var á dögum Nóa:+ 27 Fólk át og drakk, kvæntist og giftist fram til þess dags sem Nói gekk inn í örkina+ og flóðið kom og eyddi öllum.+ 28 Eins gerðist á dögum Lots:+ Fólk át og drakk, keypti og seldi, gróðursetti og byggði. 29 En daginn sem Lot fór út úr Sódómu rigndi eldi og brennisteini af himni og eyddi öllum.+ 30 Eins verður á þeim degi sem Mannssonurinn opinberast.+
31 Sá sem er uppi á þaki á þeim degi en er með eigur sínar í húsinu á ekki að fara niður til að sækja þær, og sá sem er úti á akri á ekki heldur að fara heim til að ná í það sem hann á. 32 Munið eftir konu Lots.+ 33 Hver sem reynir að bjarga lífi sínu týnir því en hver sem týnir lífi sínu varðveitir það.+ 34 Ég segi ykkur að þá nótt verða tveir í sama rúmi, annar verður tekinn en hinn skilinn eftir.+ 35 Tvær konur mala í sömu kvörn, önnur verður tekin en hin skilin eftir.“ 36* —— 37 Þeir spurðu hann þá: „Hvar, Drottinn?“ Hann svaraði: „Þar sem líkið er þar safnast ernirnir.“+