SÖNGUR 107
Guð er fyrirmynd um kærleikann
1. Hjá Jehóva von og fyrirmynd fáum,
kennir hann kærleikann.
Með leiðsögn hann kom, af samskiptum sjáum
hvernig má tjá, elsku hans fá.
Hann gaf eigin son, það kærleik hans tjáði,
er lausnargjald var og syndir afmáði.
Það sannar hans ást sem Ritningin spáði.
Kærleikans leið er skaparans leið.
2. Er fetum þann veg þá elskan til bræðra
verður sönn, hlý og sönn.
Þá knýr þessi ást, sem öllu er æðra,
allt bræðralag, eflir þess hag.
Ef elskum við Guð þá elskum við bræður,
við miskunnum þeim því kærleikur ræður
en ávöxtur hans er alveg einstæður.
Þá vel mun sjást sönn bróðurleg ást.
3. Að fyrirmynd Guðs við fjölskylda erum,
sameinuð lofum Guð.
Við hjálpumst öll að og boð hans út berum:
„Upplifið hér hvað eining er.“
Hér gleði má sjá sem einkennismerki
því innblásin orðin birtast í verki
og hvatning má fá svo villumst við ekki
Jehóva frá, hans kærleika frá.
(Sjá einnig Rómv. 12:10; Ef. 4:3; 2. Pét. 1:7.)