SÖNGUR 94
Þakklát fyrir orð Guðs
Prentuð útgáfa
1. Þér, Jehóva, þökkum nú þitt góða orð
og þiggjum að nærast við nægtanna borð.
Öll ritning er frá Guði,
hún leysir lygum frá
og lýsir upp veginn svo sannleik má sjá.
2. Þitt orð það er kröftugt og kannar mörg djúp,
það kemst inn í hjartað og sviptir burt hjúp.
Þar réttlát lög þín standa,
þar staðlar þínir fást.
Ef stundum vel námið þá framför mun sjást.
3. Ó, faðir, þitt orð huggun færir og frið,
það fjallar um fólk sem að var eins og við.
Við sameinumst í trúnni
er seðjumst við þitt borð,
þér sannleikann þökkum, já, þitt góða orð.
(Sjá einnig Sálm 19:10; 119:16, 162; 2. Tím. 3:16; Jak. 5:17; 2. Pét. 1:21.)