Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
2 Orð þeirra streyma fram dag eftir dag,
þeir fræða okkur nótt eftir nótt.
3 Rödd þeirra heyrist ekki,
ekkert tal, engin orð.
Á himni hefur hann reist sólinni tjald.
5 Hún gengur út úr brúðarherbergi sínu eins og brúðgumi,
eins og hetja fagnar hún yfir að þeysa sína leið.
Geislar hennar ylja allri jörðinni.
7 Lög Jehóva eru fullkomin,+ veita nýjan kraft.+
Áminningar Jehóva eru áreiðanlegar,+ gera hinn óreynda vitran.+
8 Fyrirmæli Jehóva eru réttlát, gleðja hjartað.+
Boðorð Jehóva eru tær, lýsa upp augun.+
9 Óttinn* við Jehóva+ er hreinn, varir að eilífu.
Dómar Jehóva eru sannir, réttlátir á allan hátt.+
10 Þeir eru verðmætari en gull,
ógrynni af skíragulli,+
og sætari en hunang,+ hunang sem drýpur úr vaxkökunni.
12 Hver er meðvitaður um eigin mistök?+
Sýknaðu mig af syndum sem ég veit ekki af.
Þá verð ég hreinn+
og saklaus af alvarlegum syndum.