SÖNGUR 30
Guð er vinur minn og faðir
Prentuð útgáfa
1. Lífið oft leikur menn hart,
lífinu fylgja oft tregatár.
Samt skal ég segja hvern dag:
Ég sannleik gaf mín ár.
(VIÐLAG)
Já, Guð, minn vinur góður,
hann aldrei gleymir auðsýndri ást.
Hann er mér ávallt nærri,
aldrei ástúð Jehóva brást.
Já, hann er öruggt hæli
og mun mér hlífa um ár og síð.
Guð er vinur, faðir góður
um alla tíð.
2. Æskunnar skeið liðið er,
upprunnir dagarnir vondu hér.
Samt get ég séð trúnni með
að sæluvon ég hef.
(VIÐLAG)
Já, Guð, minn vinur góður,
hann aldrei gleymir auðsýndri ást.
Hann er mér ávallt nærri,
aldrei ástúð Jehóva brást.
Já, hann er öruggt hæli
og mun mér hlífa um ár og síð.
Guð er vinur, faðir góður
um alla tíð.
(Sjá einnig Sálm 71:17, 18.)