Bréfið til Hebrea
6 Nú höfum við sagt skilið við byrjendafræðsluna+ um Krist. Við skulum því sækja fram til þroska+ en ekki fara að leggja grunninn að nýju með því að ræða um iðrun vegna dauðra verka og trú á Guð, 2 eða þá kenningar um skírnir, handayfirlagningar,+ upprisu dauðra+ og eilífan dóm. 3 Já, þetta gerum við ef Guð leyfir.
4 Ef menn hafa einu sinni verið upplýstir,+ smakkað hina himnesku gjöf og fengið hlutdeild í heilögum anda, 5 og hafa reynt hið góða orð Guðs og krafta komandi heimsskipanar* 6 en síðan fallið frá+ er ekki hægt að fá þá til að snúa við og iðrast. Þeir staurfesta son Guðs að nýju svo að hann er smánaður opinberlega.+ 7 Jörðin hlýtur blessun frá Guði þegar hún drekkur í sig regnið sem fellur ríkulega á hana og ber gróður til gagns fyrir þá sem yrkja hana. 8 En ef hún ber þyrna og þistla er hún yfirgefin. Bölvun vofir yfir henni og að lokum verður hún brennd.
9 En þótt við segjum þetta erum við sannfærðir um að þið, elskuðu bræður og systur, séuð betur á vegi stödd og séuð á leið til frelsunar. 10 Guð er ekki ranglátur. Hann gleymir ekki verki ykkar og kærleikanum sem þið sýnduð nafni hans+ með því að þjóna hinum heilögu eins og þið gerið enn. 11 Það er ósk okkar að þið séuð öll jafn kappsöm og þið voruð í byrjun svo að þið getið verið algerlega örugg allt til enda+ um að vonin rætist.+ 12 Við viljum ekki að þið verðið sljó+ heldur að þið líkið eftir þeim sem vegna trúar og þolinmæði erfa það sem lofað hefur verið.
13 Þegar Guð gaf Abraham loforðið sór hann við sjálfan sig+ því að hann hafði engan æðri til að sverja við. 14 Hann sagði: „Ég mun vissulega blessa þig og margfalda afkomendur þína.“+ 15 Það var eftir að Abraham hafði beðið þolinmóður sem hann fékk þetta loforð. 16 Menn sverja við þann sem er þeim æðri og eiðurinn bindur enda á allar deilur þar sem hann veitir þeim lagalega tryggingu.+ 17 Guð fór eins að. Þegar hann ákvað að sýna erfingjum loforðsins+ enn skýrar fram á að fyrirætlun* sín væri óbreytanleg ábyrgðist hann loforðið* með eiði. 18 Þetta tvennt er óbreytanlegt því að Guð getur ekki logið.+ Það er okkur sem höfum leitað athvarfs hjá honum mikil hvatning til að halda fast í vonina sem okkur er gefin. 19 Þessi von okkar+ er eins og akkeri fyrir sálina,* bæði traust og örugg. Hún nær inn fyrir fortjaldið+ 20 þangað sem Jesús gekk inn á undan okkur+ og opnaði okkur leið, en hann er orðinn eilífur æðstiprestur á sama hátt og Melkísedek.+