Fyrra bréfið til Tímóteusar
4 En hið innblásna orð* segir greinilega að þeir tímar komi að sumir falli frá trúnni því að þeir hlusti á villandi innblásin orð*+ og kenningar illra anda, 2 á hræsnisfulla lygara+ sem eru brennimerktir á samvisku sinni. 3 Þeir banna fólki að giftast+ og skipa því að halda sig frá mat+ sem Guð skapaði til að þeir sem trúa og þekkja sannleikann til hlítar geti neytt hans+ og þakkað Guði. 4 Allt sem Guð hefur skapað er gott+ og engu ætti að hafna+ ef tekið er við því með þakklæti 5 því að það helgast með orði Guðs og bæn.
6 Með því að gefa bræðrum og systrum þessar leiðbeiningar sýnirðu að þú ert góður þjónn Krists Jesú, nærður af orði trúarinnar og góðu kenningunni sem þú hefur fylgt gaumgæfilega.+ 7 En hafnaðu skammarlegum skröksögum+ eins og þeim sem gamlar konur eiga til að segja. Æfðu þig heldur markvisst í að vera guðrækinn. 8 Líkamleg æfing er gagnleg að vissu marki en guðræknin er gagnleg á allan hátt því að hún gefur loforð bæði fyrir þetta líf og lífið sem er fram undan.+ 9 Þessi orð eru sönn og það má treysta þeim fullkomlega. 10 Þess vegna stritum við og leggjum hart að okkur+ því að við höfum bundið von okkar við lifandi Guð sem er frelsari+ alls konar fólks,+ sér í lagi þeirra sem eru trúfastir.
11 Haltu áfram að gefa þessi fyrirmæli og kenna þau. 12 Láttu engan líta niður á þig þótt þú sért ungur. Vertu heldur fyrirmynd hinna trúföstu í tali, hegðun, kærleika, trú og hreinleika. 13 Leggðu þig fram við upplestur+ og við að hvetja* og kenna þar til ég kem. 14 Vanræktu ekki gjöfina sem þér var gefin þegar spáð var um þig og öldungaráðið lagði hendur yfir þig.+ 15 Hugleiddu þetta vel, vertu upptekinn af því svo að framför þín sé öllum augljós. 16 Gættu stöðugt að sjálfum þér og kennslunni.+ Haltu ótrauður áfram að sinna þessu því að þá bjargarðu bæði sjálfum þér og þeim sem hlusta á þig.+