Opinberun Jóhannesar
11 Nú var mér fenginn reyrstafur+ til að mæla með og rödd sagði: „Stattu upp og mældu helgidóm musteris Guðs og altarið og teldu þá sem tilbiðja þar. 2 En slepptu forgarðinum fyrir utan helgidóm musterisins og mældu hann ekki því að hann hefur verið gefinn þjóðunum og þær munu troða hina helgu borg+ undir fótum sér í 42 mánuði.+ 3 Ég læt votta mína tvo spá í 1.260 daga, klædda hærusekkjum.“ 4 Þeir eru táknaðir með ólívutrjánum tveim+ og ljósastikunum tveim+ og þeir standa frammi fyrir Drottni jarðarinnar.+
5 Ef einhver vill gera þeim mein kemur eldur út af munni þeirra og eyðir óvinum þeirra. Já, ef einhver skyldi vilja gera þeim mein verður hann drepinn með þessum hætti. 6 Þeir hafa vald til að loka himninum+ svo að ekki rigni+ dagana sem þeir spá og þeir hafa vald til að breyta vötnunum í blóð+ og slá jörðina með hvers kyns plágum eins oft og þeir vilja.
7 Þegar þeir hafa lokið við að vitna mun villidýrið sem kemur upp úr undirdjúpinu heyja stríð við þá, sigra þá og drepa.+ 8 Lík þeirra munu liggja á aðalgötu borgarinnar miklu þar sem Drottinn þeirra var staurfestur, en hún er í andlegum skilningi kölluð Sódóma og Egyptaland. 9 Fólk af ýmsum kynþáttum, ættflokkum, tungum* og þjóðum mun horfa á lík þeirra í þrjá og hálfan dag+ og það leyfir ekki að þau séu lögð í gröf. 10 Þeir sem búa á jörðinni gleðjast og halda upp á dauða þeirra, og þeir senda hver öðrum gjafir vegna þess að spámennirnir tveir kvöldu þá sem búa á jörðinni.
11 Eftir dagana þrjá og hálfan kom lífsandi frá Guði í þá.+ Þeir stóðu á fætur og mikill ótti greip þá sem sáu þá. 12 Þeir heyrðu sterka rödd af himni sem sagði við þá: „Komið hingað upp.“ Og þeir fóru til himins í skýi og óvinir þeirra sáu það.* 13 Á sama tíma varð mikill jarðskjálfti og tíundi hluti borgarinnar hrundi. Í jarðskjálftanum fórust 7.000 manns en þeir sem eftir voru urðu hræddir og heiðruðu Guð himins.
14 Önnur ógæfan+ er liðin hjá en sú þriðja kemur fljótt.
15 Sjöundi engillinn blés í lúður sinn.+ Þá heyrðust sterkar raddir á himni sem sögðu: „Drottinn okkar og Kristur hans+ hafa fengið konungsvaldið yfir heiminum+ og hann mun ríkja sem konungur um alla eilífð.“+
16 Öldungarnir 24,+ sem sátu í hásætum sínum frammi fyrir Guði, féllu á grúfu, tilbáðu Guð 17 og sögðu: „Við þökkum þér, Jehóva* Guð, þú almáttugi, þú sem ert+ og þú sem varst, því að þú hefur beitt þínu mikla valdi og byrjað að ríkja sem konungur.+ 18 Þjóðirnar reiddust en þú reiddist líka og tíminn rann upp til að dæma hina dánu og launa+ þjónum þínum, spámönnunum,+ og hinum heilögu og þeim sem óttast nafn þitt, jafnt háum sem lágum, og til að eyða þeim sem eyða* jörðina.“+
19 Helgidómur musteris Guðs á himnum opnaðist og ég sá sáttmálsörk hans í helgidóminum.+ Eldingar leiftruðu, raddir heyrðust og það komu þrumur, jarðskjálfti og mikið hagl.