Fyrra bréfið til Korintumanna
10 Bræður og systur, ég vil að þið vitið að forfeður okkar voru allir undir skýinu+ og fóru allir gegnum hafið+ 2 og allir skírðust undir skýinu og í hafinu til að fylgja Móse. 3 Allir neyttu sömu andlegu fæðunnar+ 4 og drukku sama andlega drykkinn.+ Þeir drukku af andlega klettinum sem fylgdi þeim en kletturinn táknaði* Krist.+ 5 Guð var samt óánægður með flesta þeirra og þeir voru felldir í óbyggðunum.+
6 Við getum lært af því sem gerðist þannig að við förum ekki að girnast það sem er illt eins og þeir gerðu.+ 7 Dýrkið ekki heldur skurðgoð eins og sumir þeirra. Skrifað stendur: „Fólkið settist niður til að borða og drekka og stóð síðan upp til að skemmta sér.“+ 8 Stundum ekki kynferðislegt siðleysi* eins og sumir þeirra gerðust sekir um en það leiddi til þess að 23.000 féllu á einum degi.+ 9 Ögrum ekki heldur Jehóva*+ eins og sumir þeirra ögruðu honum til þess eins að bíða bana fyrir höggormunum.+ 10 Kvartið ekki eins og sumir þeirra kvörtuðu+ til þess eins að farast fyrir eyðandanum.+ 11 Við getum lært af því sem kom fyrir þá og það er skráð okkur til viðvörunar+ sem lifum við endalok þessarar heimsskipanar.*
12 Sá sem heldur að hann standi gæti því að sér að falla ekki.+ 13 Þið hafið ekki orðið fyrir öðrum freistingum en algengt er meðal manna.+ Guð er trúr og lætur ekki freista ykkar umfram það sem þið ráðið við+ því að samfara freistingunni sér hann fyrir leið út úr henni svo að þið getið staðist hana.+
14 Mín elskuðu, þið skuluð því flýja skurðgoðadýrkun.+ 15 Ég tala við ykkur sem skynsamar manneskjur. Dæmið sjálf um það hvort ég fari með rétt mál. 16 Eigum við ekki hlutdeild í blóði Krists þegar við drekkum af bikar blessunarinnar sem við blessum?+ Eigum við ekki hlutdeild í líkama Krists þegar við brjótum brauðið?+ 17 Brauðið er eitt og þess vegna erum við einn líkami+ þótt við séum mörg því að við neytum öll af þessu eina brauði.
18 Lítið á Ísraelsþjóðina:* Taka ekki þeir sem borða fórnirnar þátt í tilbeiðslunni við altarið?+ 19 Hvað á ég við með þessu? Að það sem er fórnað skurðgoði sé eitthvað eða að skurðgoðið sjálft sé eitthvað? 20 Nei. Ég á við að það sem þjóðirnar fórna, það fórna þær illum öndum en ekki Guði+ og ég vil ekki að þið eigið neitt samneyti við illu andana.+ 21 Þið getið ekki drukkið bæði af bikar Jehóva* og bikar illra anda. Þið getið ekki borðað bæði af „borði Jehóva“*+ og borði illra anda. 22 Eða ‚vekjum við afbrýði Jehóva‘?*+ Varla erum við sterkari en hann.
23 Allt er leyfilegt en ekki er allt gagnlegt. Allt er leyfilegt en ekki er allt uppbyggilegt.+ 24 Hugsið ekki um eigin hag heldur hag annarra.+
25 Þið getið borðað allt sem selt er á kjötmarkaðinum án þess að spyrja frekar út í það samvisku ykkar vegna 26 því að „jörðin og allt sem á henni er tilheyrir Jehóva“.*+ 27 Ef einhver vantrúaður býður ykkur í mat og þið viljið fara getið þið borðað af öllu sem borið er fram án þess að spyrja frekar út í það samvisku ykkar vegna. 28 En ef einhver segir við ykkur: „Þessu kjöti hefur verið fórnað skurðgoðum,“ skuluð þið ekki borða það vegna hans sem sagði ykkur frá því og vegna samviskunnar.+ 29 Þá á ég ekki við þína eigin samvisku heldur samvisku hins. Hvers vegna ætti ég að nota frelsi mitt á þann hátt að samviska annarra dæmi mig?+ 30 Ef ég borða og þakka Guði fyrir, hvers vegna ætti þá að gagnrýna mig fyrir það sem ég hef þakkað fyrir?+
31 Hvort sem þið því borðið eða drekkið eða gerið eitthvað annað þá gerið allt Guði til dýrðar.+ 32 Gætið þess að verða hvorki Gyðingum né Grikkjum né söfnuði Guðs til hrösunar.+ 33 Sjálfur reyni ég að þóknast öllum á allan hátt og hugsa ekki um eigin hag+ heldur hag annarra þannig að þeir bjargist.+