Júdasarbréfið
1 Frá Júdasi, sem er þjónn Jesú Krists og bróðir Jakobs,+ til hinna kölluðu+ sem Guð faðirinn elskar og varðveitir handa Jesú Kristi.+
2 Megið þið njóta miskunnar, friðar og kærleika í ríkum mæli.
3 Þið elskuðu, mér var mikið í mun að skrifa ykkur um sameiginlega frelsun okkar+ en komst að raun um að það væri áríðandi að skrifa og hvetja ykkur til að berjast af krafti fyrir trúnni+ sem hinum heilögu var gefin í eitt skipti fyrir öll. 4 Ástæðan er sú að nokkrir menn hafa smeygt sér inn á meðal ykkar en spáð var fyrir löngu í Ritningunum að þeir hlytu dóm. Þetta eru óguðlegir menn sem misnota einstaka góðvild Guðs okkar til að réttlæta blygðunarlausa hegðun*+ og afneita okkar eina eiganda* og Drottni, Jesú Kristi.+
5 Þó að þið vitið þetta mætavel vil ég minna ykkur á að Jehóva* bjargaði fólki sínu frá Egyptalandi+ en eyddi síðar þeim sem sýndu ekki trú.+ 6 Og englana sem gættu ekki upphaflegrar stöðu sinnar heldur yfirgáfu sín réttu heimkynni+ hefur hann geymt í eilífum fjötrum í niðamyrkri til dómsins á hinum mikla degi.+ 7 Sódóma og Gómorra og borgirnar umhverfis þær gáfu sig sömuleiðis á vald grófu kynferðislegu siðleysi* og létu undan óeðlilegum girndum holdsins.+ Þær eru okkur til viðvörunar þar sem þær hlutu dóm og var refsað með eilífum eldi.+
8 Þrátt fyrir það hegða þessir menn sér eins og fólk gerði þá. Þeir láta sig dreyma, spilla líkamanum, fyrirlíta yfirvald og tala illa um hina dýrlegu.+ 9 En þegar erkiengillinn+ Mikael+ átti í deilu við Djöfulinn um lík Móse+ vogaði hann sér ekki að dæma hann með niðrandi orðum+ heldur sagði: „Jehóva* ávíti þig.“+ 10 Þessir menn tala hins vegar illa um allt sem þeir skilja ekki.+ Og allt sem þeir skilja af eðlisávísun eins og skynlausar skepnur,+ það gera þeir og það spillir þeim.
11 Það fer illa fyrir þeim því að þeir hafa fylgt vegi Kains,+ anað út á villigötur Bíleams+ í gróðaskyni og gert uppreisn og tortímst+ líkt og Kóra.*+ 12 Þeir eru blindsker við kærleiksmáltíðir ykkar+ þegar þeir borða með ykkur, hirðar sem háma í sig blygðunarlaust,+ vatnslaus ský sem hrekjast fyrir vindi,+ ávaxtalaus tré síðla hausts, tvisvar dauð* og rifin upp með rótum, 13 trylltar sjávaröldur sem freyða sinni eigin skömm,+ reikandi stjörnur sem eiga eilíft svartamyrkur í vændum.+
14 Enok,+ sjöundi maður frá Adam, spáði líka um þá þegar hann sagði: „Jehóva* kom með sínum heilögu þúsundum*+ 15 til að fullnægja dómi yfir öllum+ og dæma alla óguðlega menn seka fyrir öll þau óguðlegu verk sem þeir höfðu framið og fyrir allt það yfirgengilega sem þessir óguðlegu syndarar höfðu sagt um hann.“+
16 Þessir menn eru nöldurseggir+ sem kvarta yfir hlutskipti sínu í lífinu. Þeir láta stjórnast af eigin girndum,+ hreykja sér hátt og smjaðra fyrir öðrum* í eiginhagsmunaskyni.+
17 En þið elskuðu, munið eftir því sem postular Drottins okkar Jesú Krists hafa áður sagt.* 18 Þeir sögðu oft við ykkur: „Á síðustu tímum koma fram menn sem gera gys að því sem er rétt og láta stjórnast af óguðlegum girndum sínum.“+ 19 Þetta eru þeir sem valda sundrung,+ hugsa aðallega um langanir holdsins* og hafa ekki andlegt hugarfar.* 20 En þið elskuðu, byggið ykkur upp í ykkar helgustu trú og biðjið í krafti heilags anda+ 21 svo að þið haldið ykkur í skjóli kærleika Guðs+ meðan þið bíðið eftir miskunn Drottins okkar Jesú Krists sem leiðir til eilífs lífs.+ 22 Haldið líka áfram að sýna þeim miskunn+ sem efast+ 23 og bjargið þeim+ með því að hrífa þá út úr eldinum. Sýnið öðrum einnig miskunn en gætið ykkar og hatið jafnvel fötin sem eru flekkuð af vondum verkum.*+
24 Guð getur verndað ykkur svo að þið hrasið ekki. Hann getur látið ykkur standa frammi fyrir dýrð sinni* óflekkuð+ og með miklum fögnuði. 25 Honum, hinum eina Guði, sem frelsar okkur fyrir milligöngu Jesú Krists Drottins okkar, sé dýrð, hátign, máttur og vald frá eilífð, nú og til eilífðar. Amen.