Fyrsta bréf Jóhannesar
5 Allir sem trúa að Jesús sé Kristur eru fæddir af Guði+ og allir sem elska föðurinn elska þann sem er fæddur af honum. 2 Við vitum að við elskum börn Guðs+ ef við elskum Guð og förum eftir boðorðum hans. 3 Að elska Guð felur í sér að halda boðorð hans+ og boðorð hans eru ekki þung+ 4 því að allir* sem eru fæddir af Guði sigra heiminn.+ Og það er trú okkar sem hefur gert okkur kleift að sigra heiminn.+
5 Hver getur sigrað heiminn?+ Er það ekki sá sem trúir að Jesús sé sonur Guðs?+ 6 Jesús Kristur er sá sem kom með vatni og blóði, ekki aðeins með vatninu+ heldur með vatninu og blóðinu.+ Andinn vitnar+ um það því að andinn er sannleikurinn. 7 Þeir eru sem sagt þrír sem vitna: 8 andinn,+ vatnið+ og blóðið,+ og þeim þrem ber saman.
9 Við tökum vitnisburð manna gildan en vitnisburður Guðs vegur þyngra. Og Guð hefur sjálfur vitnað um son sinn. 10 Sá sem trúir á son Guðs hefur vitnisburðinn innra með sér. Sá sem trúir ekki á Guð hefur gert hann að lygara+ því að hann trúir ekki þeim vitnisburði sem Guð hefur gefið um son sinn. 11 Vitnisburðurinn er sá að Guð gaf okkur eilíft líf+ og þetta líf er í syni hans.+ 12 Sá sem viðurkennir soninn hlýtur eilíft líf. Sá sem viðurkennir ekki son Guðs hlýtur ekki eilíft líf.+
13 Ég skrifa ykkur þetta til að þið vitið að þið hljótið eilíft líf,+ þið sem trúið á nafn sonar Guðs.+ 14 Og við berum það traust til Guðs+ að hann heyri* okkur, hvað sem við biðjum um samkvæmt vilja hans.+ 15 Fyrst við vitum að hann heyrir okkur, sama hvað við biðjum um, vitum við líka að við fáum það sem við höfum beðið hann um.+
16 Ef einhver sér bróður sinn drýgja synd sem leiðir ekki til dauða skal hann biðja og Guð veitir bróðurnum líf,+ það er að segja þeim sem drýgir ekki synd sem leiðir til dauða. En til er synd sem leiðir til dauða.+ Ég er ekki að segja honum að biðja fyrir þess konar synd. 17 Allt ranglæti er synd+ en til er synd sem leiðir ekki til dauða.
18 Við vitum að enginn sem er fæddur af Guði heldur áfram að syndga. Sonur Guðs* gætir hans og hinn vondi getur ekki gert honum neitt.*+ 19 Við vitum að við erum Guðs megin en allur heimurinn er á valdi hins vonda.+ 20 Við vitum að sonur Guðs kom+ og veitti okkur skilning* til að við gætum kynnst hinum sanna Guði. Við erum sameinuð honum vegna sonar hans, Jesú Krists.+ Þetta er hinn sanni Guð og uppspretta eilífs lífs.+ 21 Börnin mín, varið ykkur á skurðgoðum.+