Önnur Mósebók
3 Móse gerðist fjárhirðir hjá Jetró+ tengdaföður sínum, prestinum í Midían. Eitt sinn fór hann með hjörðina í vesturhluta óbyggðanna og kom að lokum að Hóreb,+ fjalli hins sanna Guðs. 2 Þá birtist engill Jehóva honum í eldi sem logaði í miðjum þyrnirunna.+ Móse horfði á og sá þá að runninn brann ekki þótt hann stæði í ljósum logum. 3 Hann hugsaði með sér: „Þetta er undarlegt. Ég ætla að færa mig nær og kanna af hverju þyrnirunninn brennur ekki.“ 4 Þegar Jehóva sá að Móse gekk nær til að skoða þetta kallaði hann til hans úr þyrnirunnanum: „Móse! Móse!“ Hann svaraði: „Hér er ég.“ 5 Þá sagði Guð: „Komdu ekki nær. Farðu úr sandölunum því að staðurinn sem þú stendur á er heilög jörð.“
6 Hann hélt áfram: „Ég er Guð föður þíns, Guð Abrahams,+ Guð Ísaks+ og Guð Jakobs.“+ Þá huldi Móse andlitið því að hann þorði ekki að líta á hinn sanna Guð. 7 Jehóva bætti við: „Ég hef séð hve illa er farið með fólk mitt í Egyptalandi og heyrt hvernig það hrópar á hjálp vegna þeirra sem þrælka það. Ég veit hvernig það þjáist.+ 8 Ég ætla að stíga niður, bjarga því úr höndum Egypta+ og leiða það út úr landinu og inn í gott og víðáttumikið land sem flýtur í mjólk og hunangi,+ á svæði Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.+ 9 Já, hróp Ísraelsmanna hafa náð til mín og ég hef líka séð hve grimmilega Egyptar kúga þá.+ 10 Ég ætla nú að senda þig til faraós og þú átt að leiða þjóð mína, Ísraelsmenn, út úr Egyptalandi.“+
11 En Móse sagði við hinn sanna Guð: „Hvernig á maður eins og ég að fara til faraós og leiða Ísraelsmenn út úr Egyptalandi?“ 12 Hann svaraði: „Ég verð með þér+ og þetta verður tákn þess að ég hafi sent þig: Eftir að þú hefur leitt fólkið út úr Egyptalandi munuð þið þjóna* hinum sanna Guði á þessu fjalli.“+
13 Þá sagði Móse við hinn sanna Guð: „Segjum að ég fari til Ísraelsmanna og segi við þá: ‚Guð forfeðra ykkar sendi mig til ykkar.‘ Hverju á ég að svara þeim ef þeir spyrja: ‚Hvað heitir hann?‘“+ 14 Guð svaraði Móse: „Ég verð það sem ég kýs að* verða.“*+ Hann bætti við: „Þú skalt segja Ísraelsmönnum: ‚Ég verð sendi mig til ykkar.‘“+ 15 Guð sagði þá aftur við Móse:
„Þú skalt segja Ísraelsmönnum: ‚Jehóva, Guð forfeðra ykkar, Guð Abrahams,+ Guð Ísaks+ og Guð Jakobs,+ sendi mig til ykkar.‘ Það er nafn mitt að eilífu+ og undir því nafni verð ég þekktur frá kynslóð til kynslóðar. 16 Farðu nú og safnaðu saman öldungum Ísraels og segðu við þá: ‚Jehóva, Guð forfeðra ykkar, birtist mér, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, og sagði: „Ég hef fylgst með ykkur+ og séð hvernig farið er með ykkur í Egyptalandi. 17 Þess vegna hef ég ákveðið að frelsa ykkur undan kúgun+ Egypta og leiða ykkur inn í land Kanverja, Hetíta, Amoríta,+ Peresíta, Hevíta og Jebúsíta,+ land sem flýtur í mjólk og hunangi.“‘+
18 Þeir munu hlusta á þig+ og þú munt ganga fyrir konung Egyptalands ásamt öldungum Ísraels og þið skuluð segja við hann: ‚Jehóva Guð Hebrea+ hefur birst okkur. Leyfðu okkur því að fara í þriggja daga ferð* út í óbyggðirnar til að færa Jehóva Guði okkar fórnir.‘+ 19 Ég veit þó vel að konungur Egyptalands mun ekki leyfa ykkur að fara nema hann sé þvingaður til þess.+ 20 Þess vegna mun ég rétta út höndina og refsa Egyptalandi með öllum þeim máttarverkum sem ég mun vinna þar, og eftir það lætur hann ykkur fara.+ 21 Og ég mun láta ykkur njóta velvildar Egypta svo að þið farið ekki tómhentir þaðan.+ 22 Hver kona skal biðja grannkonu sína og konuna sem dvelur í húsi hennar um gripi úr silfri og gulli og um fatnað, og þið skuluð láta syni ykkar og dætur bera það. Þið skuluð ræna Egypta.“+