Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð, sungið við „Hind morgunroðans“.*
22 Guð minn, Guð minn, hvers vegna hefurðu yfirgefið mig?+
Hvers vegna ertu svo fjarri og bjargar mér ekki?
Hvers vegna heyrirðu ekki neyðaróp mín?+
2 Guð minn, allan daginn hrópa ég en þú svarar ekki,+
um nætur er ég ekki hljóður.
6 En ég er maðkur en ekki maður,
smánaður af mönnum og fyrirlitinn af fólkinu.+
7 Allir sem sjá mig gera gys að mér.+
Þeir hrista höfuðið og segja hæðnislega:+
8 „Hann treysti Jehóva fyrir lífi sínu. Hann skal bjarga honum!
Hann frelsi hann fyrst honum er svona annt um hann!“+
9 Þú leiddir mig út úr móðurkviði,+
lést mig finna til öryggis við brjóst móður minnar.
10 Þú hefur annast mig frá því að ég fæddist,*
verið Guð minn síðan ég var í móðurkviði.
14 Ég er eins og vatn sem hellt er niður,
bein mín eru öll farin úr lið,
hjarta mitt orðið eins og vax,+
það bráðnar í brjósti mér.+
17 Ég get talið öll bein mín.+
Þeir standa og glápa á mig,
18 þeir skipta fötum mínum á milli sín
og varpa hlutkesti um fatnað minn.+
19 En þú, Jehóva, vertu ekki fjarri.+
Þú ert styrkur minn, komdu mér fljótt til hjálpar.+
23 Lofið Jehóva, þið sem óttist hann,
vegsamið hann,+ allir afkomendur Jakobs,
berið lotningu fyrir honum, þið afkomendur Ísraels,
24 því að hann fyrirleit ekki hinn hrjáða né lokaði augunum fyrir þjáningum hans.+
25 Ég vil lofa þig í stórum söfnuði,+
efna heit mín frammi fyrir þeim sem óttast þig.
Megið þið njóta lífsins* að eilífu.
27 Um alla jörð mun fólk muna eftir Jehóva og snúa sér til hans,
allar ættir þjóðanna falla fram fyrir þér+
28 því að þú, Jehóva, ert konungur+
og ríkir yfir þjóðunum.
29 Hinir auðugu* á jörðinni munu allir borða og falla fram fyrir honum,
allir sem hníga í duftið krjúpa fyrir honum,
enginn þeirra getur bjargað eigin lífi.
30 Afkomendur þeirra munu þjóna honum,
komandi kynslóð verður sagt frá Jehóva.
31 Réttlæti hans verður kunngert
og þeir sem enn eru ófæddir fá að heyra um allt sem hann hefur gert.