Fyrra bréfið til Korintumanna
6 Hvernig getur nokkrum ykkar sem á í deilu við annan+ dottið í hug að fara með málið fyrir dómstól ranglátra manna í stað þess að leita til hinna heilögu? 2 Vitið þið ekki að hinir heilögu munu dæma heiminn?+ Og fyrst þið eigið að dæma heiminn, eruð þið þá ekki færir um að dæma í smávægilegum málum? 3 Vitið þið ekki að við munum dæma engla?+ Þá hljótum við að geta dæmt í hversdagslegum málum. 4 Hvers vegna farið þið til manna sem söfnuðurinn telur óhæfa og látið þá dæma í hversdagslegum málum?+ 5 Ég segi þetta til að þið skammist ykkar. Er enginn nógu vitur á meðal ykkar til að dæma í málum milli bræðra sinna? 6 Í staðinn draga bræður hver annan fyrir rétt og það fyrir vantrúuðum!
7 Það eitt að þið eigið í málaferlum hver við annan er ósigur fyrir ykkur. Hvers vegna látið þið ekki heldur beita ykkur órétti?+ Hvers vegna látið þið ekki heldur hafa eitthvað af ykkur? 8 Þess í stað beitið þið aðra órétti og hafið af þeim verðmæti, og það af bræðrum ykkar!
9 Vitið þið ekki að ranglátir erfa ekki ríki Guðs?+ Látið ekki blekkjast.* Þeir sem lifa kynferðislega siðlausu lífi,*+ þeir sem dýrka skurðgoð,+ þeir sem halda fram hjá maka sínum,+ karlar sem leyfa körlum að eiga kynmök við sig,+ karlar sem stunda kynlíf með körlum,*+ 10 þjófar, ágjarnir,+ drykkjumenn,+ lastmálir* og ræningjar erfa ekki ríki Guðs.+ 11 Og þannig voruð þið sumir ykkar. En þið hafið hreinsast,+ þið hafið helgast,+ þið eruð lýstir réttlátir+ í nafni Drottins Jesú Krists og með anda Guðs okkar.
12 Ég hef leyfi til að gera allt en það er ekki allt gagnlegt.+ Ég hef leyfi til að gera allt en ég læt ekkert ná tökum á* mér. 13 Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn en Guð gerir hvort tveggja að engu.+ Líkaminn er ekki ætlaður fyrir kynferðislegt siðleysi* heldur fyrir Drottin+ og Drottinn er fyrir líkamann. 14 En Guð reisti Drottin upp+ og mun líka reisa okkur upp frá dauðum+ með krafti sínum.+
15 Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir á líkama Krists?+ Á ég þá að taka limi líkama Krists og sameina þá vændiskonu? Auðvitað ekki! 16 Vitið þið ekki að sá sem hefur mök við vændiskonu verður einn líkami með henni? „Þau tvö verða eitt,“*+ segir Guð. 17 En sá sem sameinast Drottni er eitt með honum í anda.+ 18 Flýið kynferðislegt siðleysi!*+ Allar aðrar syndir sem maðurinn kann að drýgja eru fyrir utan líkama hans en sá sem stundar kynferðislegt siðleysi syndgar gegn sínum eigin líkama.+ 19 Vitið þið ekki að líkami ykkar er musteri+ heilags anda sem er í ykkur og þið hafið fengið frá Guði?+ Þið eigið ykkur ekki sjálf+ 20 því að þið eruð verði keypt.+ Notið því fyrir alla muni líkama ykkar+ til að lofa Guð.+