Síðara bréfið til Tímóteusar
4 Frammi fyrir Guði og Kristi Jesú, sem á að dæma+ lifandi og dauða+ þegar hann birtist+ og kemur í ríki sínu,+ hvet ég þig eindregið 2 til að boða orðið.+ Gerðu það af kappi, bæði á hagstæðum tímum og erfiðum. Áminntu,+ ávítaðu og hvettu með mikilli þolinmæði og góðri kennslu.*+ 3 Sá tími kemur að fólk þolir ekki hina heilnæmu* kenningu+ heldur fylgir eigin löngunum og safnar í kringum sig kennurum til að heyra það sem kitlar eyrun.*+ 4 Það hættir að hlusta á sannleikann og verður upptekið af lygasögum. 5 Þú skalt hins vegar hugsa skýrt í öllu, halda út í mótlæti,+ vinna verk trúboða* og gera þjónustu þinni góð skil.+
6 Mér er nú úthellt eins og drykkjarfórn+ og það er stutt í að ég verði leystur.+ 7 Ég hef barist góðu baráttunni,+ ég hef lokið hlaupinu,+ ég hef varðveitt trúna. 8 Nú bíður mín kóróna réttlætisins+ sem Drottinn, hinn réttláti dómari,+ mun gefa mér að launum á þeim degi,+ en ekki aðeins mér heldur öllum sem hafa þráð að hann birtist.
9 Reyndu eins og þú getur að koma til mín sem fyrst 10 því að Demas+ hefur yfirgefið mig þar sem hann elskaði þennan heim.* Hann er farinn til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu. 11 Enginn er hjá mér nema Lúkas. Taktu Markús með þér því að hann er mér mikil hjálp í þjónustunni. 12 Ég hef sent Týkíkus+ til Efesus. 13 Þegar þú kemur taktu þá með þér skikkjuna sem ég skildi eftir í Tróas hjá Karpusi og bókrollurnar, sérstaklega skinnhandritin.
14 Alexander koparsmiður gerði mér margt illt. Jehóva* mun gjalda honum eftir verkum hans.+ 15 Þú skalt líka gæta þín á honum því að hann barðist af heift gegn boðskap okkar.
16 Í fyrstu málsvörn minni kom enginn mér til hjálpar heldur yfirgáfu mig allir. Vonandi þurfa þeir ekki að svara fyrir það. 17 En Drottinn stóð með mér og gaf mér kraft svo að ég gæti gert boðuninni full skil og allar þjóðir fengju að heyra boðskapinn.+ Og mér var bjargað úr gini ljónsins.+ 18 Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu. Hann bjargar mér og leiðir mig inn í himneskt ríki sitt.+ Honum sé dýrðin um alla eilífð. Amen.
19 Ég bið að heilsa Prisku og Akvílasi+ og heimilisfólki Ónesífórusar.+
20 Erastus+ varð eftir í Korintu en ég skildi Trófímus+ eftir veikan í Míletus. 21 Reyndu eins og þú getur að koma fyrir veturinn.
Evbúlus sendir þér kveðju og sömuleiðis Púdes, Línus, Kládía og allir aðrir í söfnuðinum.
22 Drottinn blessi það hugarfar sem þú sýnir. Einstök góðvild hans sé með ykkur.