Síðara bréfið til Korintumanna
6 Sem samverkamenn Guðs+ hvetjum við ykkur líka til að láta ekki einstaka góðvild hans, sem þið hafið þegið, verða til einskis.+ 2 Hann segir: „Á tíma velvildar bænheyrði ég þig og á degi frelsunar hjálpaði ég þér.“+ Nú er þessi sérstaki velvildartími. Nú er dagur frelsunarinnar.
3 Við gefum engum neitt tilefni til hrösunar svo að enginn hafi ástæðu til að gagnrýna þjónustu okkar.+ 4 Við sýnum á allan hátt að við erum þjónar Guðs+ með miklu þolgæði, í raunum, í skorti, í erfiðleikum,+ 5 í misþyrmingum, í fangelsi+ og í uppþotum. Við höfum stritað, verið andvaka og verið matarlausir.+ 6 Við lifum hreinu lífi, búum yfir þekkingu, erum þolinmóðir,+ sýnum góðvild,+ lútum leiðsögn heilags anda og sýnum hræsnislausan kærleika.+ 7 Við segjum sannleikann, reiðum okkur á kraft Guðs+ og beitum vopnum réttlætisins+ með hægri hendi* og vinstri.* 8 Við fáum bæði heiður og vansæmd, gagnrýni og hrós. Við erum álitnir svikarar en segjum þó sannleikann, 9 óþekktir en erum þó vel þekktir og að dauða komnir* en erum þó lifandi.+ Okkur virðist vera refsað* en við erum þó ekki framseldir til dauða.+ 10 Við virðumst hryggir en erum þó alltaf glaðir, fátækir en auðgum þó marga, allslausir en eigum þó allt.+
11 Við höfum talað opinskátt við ykkur, Korintumenn, og við höfum gert rúmgott í hjörtum okkar. 12 Við höldum ekki aftur af kærleika okkar til ykkar+ en þið berið takmarkaðan kærleika til okkar. 13 Komið nú eins fram við okkur – ég tala við ykkur eins og börnin mín: Gerið líka rúmgott í hjörtum ykkar.*+
14 Gangist ekki undir ok með vantrúuðum+ því að okið verður ójafnt.* Hvað eiga réttlæti og lögleysi saman að sælda?+ Eða hvað er sameiginlegt með ljósi og myrkri?+ 15 Og hvaða samhljómur er með Kristi og Belíar?*+ Eða hvað á hinn trúaði* sameiginlegt* með vantrúuðum?+ 16 Hvernig geta musteri Guðs og skurðgoð átt saman?+ Við erum musteri lifandi Guðs+ eins og Guð hefur sagt: „Ég mun búa meðal þeirra+ og ganga um meðal þeirra, ég verð Guð þeirra og þeir verða fólk mitt.“+ 17 „‚Farið því burt frá þeim og aðgreinið ykkur,‘ segir Jehóva,* ‚hættið að snerta það sem er óhreint,‘“+ „‚og ég mun taka ykkur að mér‘“.+ 18 „‚Ég verð ykkur faðir+ og þið verðið mér synir og dætur,‘+ segir Jehóva,* Hinn almáttugi.“