Opinberun Jóhannesar
6 Ég sá lambið+ rjúfa hið fyrsta af innsiglunum sjö+ og heyrði eina af lifandi verunum fjórum+ segja með rödd sem hljómaði eins og þruma: „Komdu!“ 2 Og ég sá hvítan hest+ og sá sem sat á honum hélt á boga. Honum var fengin kóróna+ og hann fór út sigrandi og til að vinna fullnaðarsigur.+
3 Þegar lambið rauf annað innsiglið heyrði ég aðra lifandi veruna+ segja: „Komdu!“ 4 Þá kom fram annar hestur, eldrauður, og þeim sem sat á honum var gefið vald til að taka friðinn burt af jörðinni svo að menn stráfelldu hverjir aðra, og honum var fengið stórt sverð.+
5 Þegar lambið rauf þriðja innsiglið+ heyrði ég þriðju lifandi veruna+ segja: „Komdu!“ Og ég sá svartan hest og sá sem sat á honum hélt á vogarskálum í hendinni. 6 Ég heyrði eitthvað sem líktist rödd og barst frá lifandi verunum fjórum. Hún sagði: „Lítri* af hveiti fyrir denar*+ og þrír lítrar af byggi fyrir denar og bruðlaðu ekki með* ólívuolíuna og vínið.“+
7 Þegar lambið rauf fjórða innsiglið heyrði ég rödd fjórðu lifandi verunnar+ sem sagði: „Komdu!“ 8 Og ég sá fölhvítan hest og sá sem sat á honum hét Dauði. Gröfin* fylgdi fast á hæla honum. Þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar, vald til að drepa menn með löngu sverði, hungursneyð+ og drepsótt og láta villidýr jarðarinnar bana þeim.+
9 Þegar lambið rauf fimmta innsiglið sá ég undir altarinu+ sálir*+ þeirra sem höfðu verið drepnir vegna orðs Guðs og vegna þess að þeir höfðu borið vitni.+ 10 Þeir hrópuðu hárri röddu: „Alvaldur Drottinn, þú sem ert heilagur og sannur,+ hve lengi ætlarðu að bíða með að dæma þá sem búa á jörðinni og hefna blóðs okkar á þeim?“+ 11 Hverjum og einum þeirra var fengin hvít skikkja+ og þeim var sagt að hvílast aðeins lengur, þar til náð væri tölu samþjóna þeirra sem átti að taka af lífi eins og þá.+
12 Ég sá lambið rjúfa sjötta innsiglið og þá varð mikill jarðskjálfti. Sólin varð svört eins og hærusekkur,* allt tunglið varð eins og blóð+ 13 og stjörnur himins féllu til jarðar eins og þegar óþroskaðar fíkjur falla af fíkjutré í stormi. 14 Himinninn hvarf eins og bókrolla sem vafin er saman,+ og hvert fjall og hver eyja færðist úr stað.+ 15 Konungar jarðarinnar, háttsettir embættismenn og herforingjar, hinir ríku og hinir voldugu, allir þrælar og allir frjálsir menn földu sig þá í hellum og í klettum fjallanna.+ 16 Þeir segja hvað eftir annað við fjöllin og klettana: „Hrynjið yfir okkur+ og felið okkur fyrir honum sem situr í hásætinu+ og fyrir reiði lambsins+ 17 því að hinn mikli reiðidagur þeirra er kominn+ og hver getur lifað hann af?“+