Fyrra bréf Péturs
3 Þið eiginkonur, verið sömuleiðis undirgefnar eiginmönnum ykkar+ til að þeir sem hlýða ekki orðinu geti unnist orðalaust vegna hegðunar ykkar+ 2 þegar þeir sjá hreint líferni ykkar+ og djúpa virðingu. 3 Leggið ekki áherslu á ytra skart – fléttur og skartgripi úr gulli+ eða fín föt – 4 heldur hinn hulda mann hjartans búinn skarti kyrrðar og hógværðar+ sem eyðist ekki og er mikils virði í augum Guðs. 5 Hinar heilögu konur til forna sem vonuðu á Guð fegruðu sig þannig og voru undirgefnar eiginmönnum sínum 6 eins og Sara sem hlýddi Abraham og kallaði hann herra.+ Þið eruð orðnar börn hennar ef þið haldið áfram að gera gott og látið ekki óttann ná tökum á ykkur.+
7 Þið eiginmenn skuluð vera skynsamir* í sambúðinni við konur ykkar. Virðið þær+ sem veikara ker, hið kvenlega, þar sem þær erfa með ykkur+ lífið sem er óverðskulduð gjöf Guðs. Þá hindrast bænir ykkar ekki.
8 Að lokum, verið öll samhuga,*+ sýnið samkennd, bróðurást, innilega umhyggju+ og auðmýkt.+ 9 Gjaldið ekki illt fyrir illt+ eða móðgun fyrir móðgun.+ Endurgjaldið heldur með blessun+ því að til þessarar lífsbrautar voruð þið kölluð svo að þið gætuð hlotið blessun.
10 Skrifað stendur: „Sá sem elskar lífið og vill sjá góða daga haldi tungu sinni frá illu+ og vörum sínum frá lygi. 11 Hann snúi baki við hinu illa+ og geri gott,+ þrái frið og keppi eftir honum+ 12 því að augu Jehóva* hvíla á hinum réttlátu og eyru hans hlusta á bænir þeirra,+ en Jehóva* stendur gegn þeim sem gera illt.“+
13 Já, hver getur gert ykkur illt ef þið hafið brennandi áhuga á hinu góða?+ 14 En þótt þið þjáist fyrir að gera rétt eruð þið hamingjusöm.+ Óttist ekki það sem aðrir óttast* og verið ekki kvíðin.+ 15 Helgið Krist sem Drottin í hjörtum ykkar. Verið alltaf tilbúin að verja von ykkar fyrir hverjum þeim sem krefst þess að þið rökstyðjið hana, en gerið það með hógværð+ og djúpri virðingu.+
16 Varðveitið góða samvisku+ til að þeir sem finna að ykkur, hvað sem það nú er, verði sér til skammar+ af því að þið hegðið ykkur vel sem fylgjendur Krists.+ 17 Það er betra að þjást fyrir að gera gott,+ ef Guð leyfir það, en að þjást fyrir að gera það sem er illt.+ 18 Kristur dó fyrir syndir í eitt skipti fyrir öll,+ réttlátur maður fyrir rangláta,+ til að leiða ykkur til Guðs.+ Hann var tekinn af lífi að holdinu til+ en lífgaður sem andi.+ 19 Þannig fór hann og prédikaði fyrir öndunum í fangelsi.+ 20 Þeir höfðu óhlýðnast á sínum tíma þegar Guð beið þolinmóður á dögum Nóa+ og örkin var í smíðum+ en í henni björguðust fáeinir, það er að segja átta sálir,* í vatninu.+
21 Skírnin samsvarar þessu og hún bjargar einnig ykkur núna vegna upprisu Jesú Krists, ekki með því að þvo óhreinindi af líkamanum heldur er hún bæn til Guðs um góða samvisku.+ 22 Kristur er nú við hægri hönd Guðs+ því að hann fór til himna og englar, valdhafar og máttarvöld voru sett undir hann.+