Matteus segir frá
6 Gætið þess að vinna ekki góðverk ykkar í augsýn manna til að sýnast fyrir þeim.+ Annars fáið þið engin laun frá föður ykkar á himnum. 2 Þegar þú gefur fátækum* skaltu því ekki láta blása í lúður fyrir þér eins og hræsnarar gera í samkunduhúsum og á götum úti til að fá lof manna. Trúið mér, þeir hafa tekið út laun sín að fullu. 3 Þegar þú gefur fátækum skaltu ekki láta vinstri hönd þína vita hvað sú hægri gerir 4 svo að gjöf þín sé gefin í leynum. Faðir þinn, sem horfir á í leynum, mun þá launa þér.+
5 Þegar þið biðjist fyrir skuluð þið ekki heldur hegða ykkur eins og hræsnararnir.+ Þeir vilja gjarnan biðja standandi í samkunduhúsum og á gatnamótum til að sýnast fyrir fólki.+ Trúið mér, þeir hafa tekið út laun sín að fullu. 6 En þegar þú biður skaltu fara inn í herbergi þitt, loka dyrunum og biðja til föður þíns sem er í leynum.+ Faðir þinn, sem horfir á í leynum, mun þá launa þér. 7 Þegar þið biðjist fyrir skuluð þið ekki fara með sömu orðin aftur og aftur eins og fólk af þjóðunum gerir. Það heldur að það verði bænheyrt fyrir orðaflauminn. 8 Líkist þeim ekki. Faðir ykkar veit hvers þið þarfnist,+ jafnvel áður en þið biðjið hann.
‚Faðir okkar á himnum, við biðjum að nafn þitt+ helgist.*+ 10 Við biðjum að ríki þitt+ komi og vilji þinn+ verði á jörð+ eins og á himni. 11 Gefðu okkur brauð fyrir daginn í dag+ 12 og fyrirgefðu skuldir okkar eins og við höfum fyrirgefið þeim sem skulda okkur.+ 13 Leiddu okkur ekki í freistingu*+ heldur frelsaðu* okkur frá hinum vonda.‘+
14 Ef þið fyrirgefið mönnum það sem þeir gera á hlut ykkar mun faðir ykkar á himnum líka fyrirgefa ykkur.+ 15 En ef þið fyrirgefið ekki öðrum það sem þeir gera á hlut ykkar mun faðir ykkar ekki heldur fyrirgefa ykkur það ranga sem þið gerið.+
16 Þegar þið fastið+ skuluð þið ekki vera döpur á svip eins og hræsnararnir. Þeir afskræma andlit sín* því að þeir vilja sýna að þeir fasta.+ Trúið mér, þeir hafa tekið út laun sín að fullu. 17 En þegar þú fastar skaltu bera olíu á höfuðið og þvo þér í framan 18 svo að menn taki ekki eftir að þú fastir heldur aðeins faðir þinn sem er í leynum. Faðir þinn, sem horfir á í leynum, mun þá launa þér.
19 Hættið að safna fjársjóðum á jörð+ þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. 20 Safnið frekar fjársjóðum á himni+ þar sem hvorki mölur né ryð eyðir+ og þjófar brjótast ekki inn og stela. 21 Þar sem fjársjóður þinn er, þar verður líka hjarta þitt.
22 Augað er lampi líkamans.+ Ef augað sér skýrt* verður allur líkami þinn bjartur.* 23 En ef augað er öfundsjúkt*+ verður allur líkami þinn dimmur. Ef ljósið í þér er í rauninni myrkur, mikið er þá myrkrið!
24 Enginn getur þjónað tveim herrum því að annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn+ eða er trúr öðrum og fyrirlítur hinn. Þið getið ekki þjónað Guði og auðnum.+
25 Þess vegna segi ég ykkur: Hættið að hafa áhyggjur+ af því hvað þið eigið að borða eða drekka til að viðhalda lífi ykkar, eða hverju þið eigið að klæðast.+ Er ekki lífið meira virði en maturinn og líkaminn meira virði en fötin?+ 26 Virðið fyrir ykkur fugla himinsins.+ Þeir sá hvorki né uppskera né safna í hlöður en faðir ykkar á himnum fóðrar þá samt. Eruð þið ekki meira virði en þeir? 27 Hvert ykkar getur með áhyggjum lengt ævi sína um eina alin?*+ 28 Og hvers vegna hafið þið áhyggjur af fatnaði? Lærið af liljum vallarins, hvernig þær vaxa. Þær vinna hvorki né spinna 29 en ég segi ykkur að jafnvel Salómon+ í allri sinni dýrð var ekki eins fallega klæddur og ein þeirra. 30 Fyrst Guð prýðir þannig gróður vallarins sem stendur í dag og er kastað í ofn á morgun, mun hann þá ekki miklu frekar klæða ykkur, þið trúlitlu? 31 Segið því aldrei áhyggjufull:+ ‚Hvað eigum við að borða?‘ eða: ‚Hvað eigum við að drekka?‘ eða: ‚Hverju eigum við að klæðast?‘+ 32 Þjóðirnar keppast eftir öllu þessu en faðir ykkar á himnum veit að þið þarfnist alls þessa.
33 Einbeitið ykkur því fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti, þá fáið þið allt hitt að auki.+ 34 Hafið ekki áhyggjur af morgundeginum+ því að morgundeginum fylgja sínar áhyggjur. Hverjum degi nægja sín vandamál.