Matteus segir frá
24 Jesús var á leið frá musterinu þegar lærisveinarnir komu til hans og vildu sýna honum byggingar musterisins. 2 Þá sagði hann: „Sjáið þið allt þetta? Trúið mér, hér mun ekki standa steinn yfir steini heldur verður allt rifið niður.“+
3 Meðan hann sat á Olíufjallinu og lærisveinarnir voru einir með honum komu þeir að máli við hann og spurðu: „Segðu okkur, hvenær gerist þetta og hvert verður tákn þess að þú sért nærverandi*+ og að lokaskeið þessarar heimsskipanar* sé hafið?“+
4 Jesús svaraði þeim: „Gætið þess að láta engan blekkja ykkur+ 5 því að margir munu koma í mínu nafni og segja: ‚Ég er Kristur,‘ og blekkja marga.+ 6 Þið munuð frétta af stríðsátökum í grennd og í fjarska. Gætið þess að skelfast ekki því að þetta þarf að gerast en endirinn er samt ekki kominn.+
7 Þjóð mun ráðast gegn þjóð og ríki gegn ríki.+ Það verða hungursneyðir+ og jarðskjálftar+ á einum stað eftir annan. 8 Allt er þetta upphaf fæðingarhríðanna.*
9 Þá mun fólk ofsækja ykkur+ og drepa+ og allar þjóðir munu hata ykkur vegna nafns míns.+ 10 Margir munu einnig falla frá trúnni og svíkja og hata hver annan. 11 Margir falsspámenn koma fram og blekkja marga+ 12 og vegna þess að illskan magnast mun kærleikur flestra kólna. 13 En sá sem er þolgóður allt til enda mun bjargast.+ 14 Og fagnaðarboðskapurinn um ríkið verður boðaður um alla jörðina til að allar þjóðir fái að heyra hann,+ og síðan kemur endirinn.
15 Þegar þið sjáið viðurstyggðina sem veldur eyðingu, og Daníel spámaður talar um, standa á heilögum stað+ (sá sem les þetta sýni dómgreind) 16 þá flýi þeir sem eru í Júdeu til fjalla.+ 17 Sá sem er uppi á þaki fari ekki niður til að sækja eigur sínar í húsinu 18 og sá sem er úti á akri snúi ekki aftur til að ná í yfirhöfn sína. 19 Þetta verða skelfilegir dagar fyrir barnshafandi konur og þær sem eru með barn á brjósti. 20 Biðjið að þið þurfið ekki að flýja að vetri til eða á hvíldardegi 21 því að þá verður svo mikil þrenging+ að annað eins hefur ekki gerst frá upphafi heims allt til þessa og gerist aldrei aftur.+ 22 Ef þessir dagar yrðu ekki styttir myndi enginn bjargast en vegna hinna útvöldu verða þeir styttir.+
23 Ef einhver segir við ykkur: ‚Sjáið! Hér er Kristur,‘+ eða: ‚Þarna er hann,‘ þá skuluð þið ekki trúa því.+ 24 Falskristar og falsspámenn+ munu koma fram og gera mikil tákn og undur til að blekkja+ jafnvel hina útvöldu ef hægt er. 25 Ég hef varað ykkur við. 26 Ef fólk segir við ykkur: ‚Hann er í óbyggðunum!‘ þá skuluð þið ekki fara þangað, eða: ‚Hann er innst inni í húsinu!‘ þá skuluð þið ekki trúa því.+ 27 Nærvera* Mannssonarins verður eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs.+ 28 Þar sem hræið er þar safnast ernirnir.+
29 Strax eftir þrengingu þessara daga mun sólin myrkvast+ og tunglið hætta að skína, stjörnurnar falla af himni og kraftar himnanna nötra.+ 30 Þá birtist tákn Mannssonarins á himni og allar þjóðir* jarðar harma og kveina,+ og þær sjá Mannssoninn+ koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.+ 31 Hann sendir út engla sína með sterkum lúðurblæstri og þeir safna saman hans útvöldu úr áttunum* fjórum, frá öðrum endimörkum himins til hinna.+
32 Lærið af þessari líkingu um fíkjutréð: Um leið og ungu greinarnar mýkjast og laufið springur út vitið þið að sumar er í nánd.+ 33 Eins skuluð þið vita þegar þið sjáið allt þetta að hann er í nánd, við dyrnar.+ 34 Trúið mér, þessi kynslóð líður alls ekki undir lok fyrr en allt þetta gerist. 35 Himinn og jörð líða undir lok en orð mín líða alls ekki undir lok.+
36 Enginn veit þann dag og stund,+ hvorki englarnir á himnum né sonurinn heldur aðeins faðirinn.+ 37 Nærvera* Mannssonarins verður eins og dagar Nóa.+ 38 Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust fram til þess dags sem Nói gekk inn í örkina,+ 39 og þeir gáfu engan gaum að því sem var að gerast fyrr en flóðið kom og sópaði þeim öllum burt.+ Þannig verður við nærveru Mannssonarins. 40 Þá verða tveir menn á akri, annar verður tekinn og hinn skilinn eftir. 41 Tvær konur mala í handkvörn, önnur verður tekin og hin skilin eftir.+ 42 Haldið því vöku ykkar. Þið vitið ekki hvaða dag Drottinn ykkar kemur.+
43 En eitt skuluð þið vita: Ef húseigandinn vissi hvenær um nóttina* þjófurinn kæmi+ myndi hann vaka og ekki láta brjótast inn í hús sitt.+ 44 Verið þið sömuleiðis viðbúnir,+ því að Mannssonurinn kemur þegar þið eigið ekki von á því.
45 Hver er eiginlega hinn trúi og skynsami* þjónn sem húsbóndinn hefur sett yfir vinnuhjú sín til að gefa þeim mat á réttum tíma?+ 46 Sá þjónn er glaður ef húsbóndi hans sér hann gera það þegar hann kemur.+ 47 Trúið mér, hann setur hann yfir allar eigur sínar.
48 En ef þjónninn reynist illur og segir í hjarta sínu: ‚Húsbónda mínum seinkar,‘+ 49 og hann fer að berja samþjóna sína og borða og drekka með drykkjumönnum, 50 þá kemur húsbóndi hans á degi sem hann á ekki von á og stund sem hann býst ekki við.+ 51 Hann refsar þá þjóninum harðlega og rekur hann út til hræsnaranna. Þar mun hann gráta og gnísta tönnum.+